Landsliðsþjálfarinn Róbert Kristmannsson hefur valið sex karla til þátttöku í landsliði Íslands á Heimsbikarmóti sem fer fram í Osijek, Króatíu, dagana 8.-11. júní.
Landslið Íslands skipa:
- Arnþór Daði Jónasson, Gerplu
- Ágúst Ingi Davíðsson, Gerplu
- Dagur Kári Ólafsson, Gerplu
- Jónas Ingi Þórisson, Gerplu
- Martin Bjarni Guðmundsson, Gerplu
- Valgarð Reinhardsson, Gerplu
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og Gerplu innilega til hamingju með tilnefninguna.