Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í hópfimleikum hafa valið landslið fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2022.
Evrópumótið fer fram dagana 14. – 17. september 2022 í Lúxemborg. Miða inn á mótið er hægt að kaupa hjá Fimleikasambandinu, fyrir nánari upplýsingar sendið póst á edda.dogg@fimleikasamband.is
Ísland sendir á mótið tvö lið í fullorðinsflokki, kvennalið og karlalið. Í unglingaflokki verða send þrjú lið, stúlknalið, drengjalið og blandað lið unglinga. Hóparnir eru búnir að æfa saman síðan í júní og er spennan orðin mikil fyrir komandi móti.
Æfingamót fyrir landsliðin verður haldið 27.ágúst í Stjörnunni við opið hús, og hvetjum við alla til að mæta og sýna landsliðsfólkinu okkar stuðning og hvetja þau áfram í þeirra loka undirbúningi fyrir Evrópumótið. Nánari tímasetning kemur síðar.
Hóparnir eru
Landsliðsþjálfarar liðana eru:
Yfirþjálfarar verkefnisins eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir.
Kvennalið
- Ásta Þyrí Emilsdóttir – Gólfæfingar
- Tanja Leifsdóttir – Gólfæfingar
- Daði Snær Pálsson – Dýna og trampólín
- Þorgeir Ívarsson – Dýna og trampólín
Karlalið
- Erla Rut Mathiesen – Gólfæfingar
- Mikkel Schertz – Dýna og trampólín
- Tomas Bekkavik – Dýna og trampólín
Stúlknalið
- Björk Guðmundsdóttir – Gólfæfingar
- Magnús Óli Sigurðsson – Dýna og trampólín
- Þórdís Þöll Þráinsdóttir – Dýna og trampólín
Drengjalið
- Yrsa Ívarsdóttir – Gólfæfingar
- Aníta Þorgerður Tryggvadóttir – Dýna og trampólín
- Alexander Sigurðsson – Dýna og trampólín
Blandað lið unglinga
- Michal Říšský – Gólfæfingar
- Eysteinn Máni Oddsson – Dýna og trampólín
- Una Brá Jónsdóttir – Dýna og trampólín
Við óskum iðkendum og félögum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.
Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla