Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson og Valgarð Reinhardsson kepptu á firnasterku Heimsbikarmóti í Osijek í Króatíu í dag og gær. Á mótið eru mættir margir af bestu fimleikamönnum heims.
Ágúst og Valgarð hófu keppni á hringjum í gær. Ágúst, sem hefur verið að glíma við meiðsli í öxl átti ekki sinn besta dag á hringjunum en lét það ekki á sig fá þegar hann skilaði frábærum gólfæfingum þar sem hann hafnaði í 20. sæti af 53 keppendum. Dagur Kári keppti einnig á gólfinu og skilaði flottum æfingum sem og á bogahestinum.
Í dag kepptu Valgarð og Dagur á svifrá og Ágúst og Dagur á tvíslá. Dagur og Valgarð kláruðu flottar svifráræfingar með miklum erfiðleika. Tvísláræfingin hjá Degi Kára í heimsklassa, vantar smá upp á framkvæmd en engu að síður glæsileg æfing pökkuð af erfiðleika og flott einkunn 13.366. Þeir komast ekki í úrslit í þetta skipti en glæsileg frammistaða og flottir fúlltrúar Íslands.
Fimleikasambandið óskar keppendum, þjálfurum og félagsliði þeirra, Gerplu, til hamingju með árangurinn.
Myndbönd af öllum seríum koma inn á Elevien appið á mánudaginn.