Annar frábær dagur á Norðurlandamótinu á Álandseyjum, karlaliðið með brons, Ágúst Ingi Davíðsson og Kári Pálmason hársbreidd frá verðlaunapall.
Dagurinn byrjaði snemma í morgun þegar að unglingalandslið Íslands mættu til leiks. Stemmningin í hópnum var stórkostleg og sterk liðsheild skein í gegn. Strákarnir höfnuðu í 4. sæti aðeins 0.400 stigum frá 3. sætinu. Kári Pálmason átti einnig frábæran dag en óheppileg lending í afstökki á svifrá setti strik í reikninginn en samt sem áður með frábæra lokaeinkunn 71.050 stig, aðeins 0.150 frá bronsinu.
Þá næst var komið að karlalandsliði Íslands sem olli alls ekki vonbrigðum, stemmningin var líka stórkostleg hjá körlunum sem skilaði þeim bronsi með 232.950 stig, rétt á eftir Norðmönnum og Finnum í öðru og fyrsta sæti.
Ágúst Ingi, ríkjandi Íslandsmeistarinn átti einnig flottan dag, hann hafnaði í 4. sæti með 78.050 stig aðeins 0.150 frá Sebastian Sponevik og fór yfir 78.000 stigin í fyrsta skiptið á ferlinum sem er einnig í fyrsta skiptið sem að Íslenskur keppandi fer yfir 78.000 stig í þessum reglum á alþjóðlegu móti.
Á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum þar sem Ísland á fjölmarga keppendur. Keppnin hefst kl. 08:30 á íslenskum tíma.
Íslenskir úrslitakeppendur í fullorðinsflokki
- Ágúst Ingi Davíðsson á gólfi, hringjum, tvíslá og svifrá
- Dagur Kári Ólafsson á tvíslá og bogahesti
- Atli Snær Valgeirsson á stökk
- Martin Bjarni Guðmundsson á svifrá
- Thelma Aðalsteinsdóttir á tvíslá, slá og gólfi
- Rakel Sara Pétursdóttir á stökki og gólfi
- Lilja Katrín Gunnarsdóttir á slá
- Auður Anna Þorbjarnardóttir á stökki
Íslenskir úrslitakeppendur í unglingaflokki
- Kári Pálmason á gólf, bogahesti, hringjum og tvíslá
- Kári Hjaltason á bogahesti og hringjum
- Arnór Snær Hauksson á stökki
- Þorsteinn Orri Ólafsson á stökki
- Arney Ívarsdóttir á tvíslá og slá
- Magdalena Andradóttir á gólfi
- Elfa María Reynisdóttir á gólfi
Hér má finna úrslit dagsins
Hér má finna myndir dagsins
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis í úrslitunum á morgun.

