Evrópumótið í áhaldafimleikum karla fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 19.–23. ágúst. Ísland sendir karlalandslið til leiks auk eins „specialista“ á gólfi og í unglingaflokki keppa tveir drengir í einstaklingskeppni.
Ferðadagur var hjá karlaliðinu á laugardag og því tekin létt æfing í æfingahöllinni á sunnudeginum. Í dag (mánudag) fór fram svo kölluð podium æfing, en þá fá keppendur að æfa í keppnishöllinni og prófa áhöldin þar.
Podiumæfingin gekk heilt yfir mjög vel hjá íslenska liðinu, strákarnir og þjálfarar mjög sáttir með daginn og tilbúnir fyrir keppni á miðvikudaginn.
Unglingarniar komu til Zagreb í gær og tóku sína fyrstu æfingu í dag. Á morgun, þriðjudag, er komið að podiumæfingu hjá þeim, þar sem þeir fá að kynnast keppnisaðstæðunum áður en keppni þeirra hefst á fimmtudag.
Dagskrá íslensku strákanna
Miðvikudagurinn 19. ágúst
- Undankeppni karlandsliðs kl. 12:00–15:30
Fimmtudagurinn 20. ágúst
- Undankeppni unglingalandsliðs kl. 12:00–14:50
Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Evrópumótsins og á mótasíðu European Gymnastics.
Hægt verður að fylgjast með útsendingum frá mótinu á GymTV og úrslitum í SmartScoring.
Hér verða birtar myndir frá íslenska hópnum og mótinu í Zagreb.




Landslið Íslands
Karlalið Íslands
- Ágúst Ingi Davíðsson
- Dagur Kári Ólafsson
- Martin Bjarni Guðmundsson
- Valgarð Reinhardsson
Specialisti á gólfi Jónas Ingi Þórisson
Þjálfarar eru Viktor Kristmannson og Ólafur Garðar Gunnarsson.
Unglingalandslið Íslands
- Kári Hjaltason
- Þorsteinn Orri Ólafsson
Þjálfari er Hróbjartur Pálmar Hilmarsson og Ólafur Garðar Gunnarsson
Alþjóðlegir dómarar á mótinu eru Björn Magnús Tómasson og Sigurður Hrafn Pétursson
Framundan eru spennandi keppnisdagar í Zagreb og hlökkum við til að fylgjast með íslensku strákunum þegar keppni hefst á miðvikudag.
Áfram Ísland!