Íslensku liðin glæsileg á fyrstu dögum Norðurlandamóts unglinga og drengja í áhaldafimleikum. Falllaus keppni hjá strákunum, stelpurnar geisluðu og Kári Pálmason Norðurlandameistari unglinga!
Kári kom sá og sigraði fjölþrautarkeppnina í dag, eftir magnaðan dag þar sem allt gekk upp, þá stendur hann uppi sem Norðurlandameistari unglinga! Ekki nóg með það þá tryggði hann sér sæti í úrslitum á öllum áhöldum nema hringjunum.
Youth drengirnir hófu keppni á Norðurlandamótinu í gær, kepptu þeir í liðakeppni og fjölþraut. Íslenska liðið hafnaði í 4. sæti eftir flotta keppni. Drengirnir fara heim reynslunni ríkari eftir sitt fyrsta alþjóðlega verkefni. Efstur íslenskra drengja var það Ármann Andrason með 56.866 stig.
í dag fór svo fram liða- og fjölþrautarkeppni í unglingaflokki, Íslands sendi til keppni tvö glæsileg lið. Íslensku stúlkurnar mættu einbeittar og framkvæmdu glæsilegar æfingar. Sláin vafðist aðeins fyrir stelpunum í dag en létu þær það ekki á sig fá og gjörsamlega geislaði af þeim á gólfinu. Stelpurnar höfnuðu í 4. sætinu, hársbreidd frá bronsinu. Besta árangur íslensku stúlknanna átti hún Rakel Sara Pétursdóttir, sem er ný komin heim af Smáþjóðaleikunum, endaði hún í 9. sæti með 43.550 stig.
Unglingalið karla mætti heldur betur vel stemmt til keppni og eftir stórkostlegar tvísláaræfingar þá var það ljóst að stemmdi í góðan dag. Strákarnir fóru í gegnum mótið (allir fimm) falllaust, 30 vel heppnaðar keppnisæfingar. Frábær árangur hjá þeim, eftir harða keppni þá höfnuðu þeir í 4. sætinu, ekki langt frá bronsverðlaununum.
ÚRSLIT
Drengir – átta efstu keppa til úrslita
- Ármann Andrason – bogahestur, stökk, tvíslá og svifrá
- Ísak Þór Ívarsson – stökk
- Kristófer Fannar Jónsson – gólf
- Patrekur Páll Pétursson – bogahestur, hringir og tvíslá
U – 18 kk – sex efstu keppa til úrslita
- Kári Pálmason – gólf, bogahestur, stökk, tvíslá og svifrá
- Sólon Sverrisson – stökk og tvíslá
U – 16 kvk – sex efstu keppa til úrslita
- Kolbrún Eva Hólmarsdóttir – gólf
- Rakel Sara Pétursdóttir – stökk
- Sigurrós Ásta Þórisdóttir – gólf
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn í dag pg úrslitakeppendum góðs gengis í úrslitunum á morgun.
Hér er úrslitasíða.
Hér má finna myndir frá keppninni.





