Á dögunum fóru þeir Hróbjartur Pálmar Hilmarsson og Ólafur Garðar Gunnarsson til Halmstad í Svíþjóð þar sem þeir sóttu þjálfaranámskeiðið FIG Level 3 Academy. Námskeiðið er hæsta þjálfaragráða sem í boði er hjá Alþjóðlega Fimleikasambandinu (World Gymnastics)
Á námskeiðinu var farið ítarlega yfir líffræðilega, verkfræðilega og þjálffræðilega þætti fimleika þar sem sérstök áhersla var lögð á erfiðustu æfingar sem framkvæmdar eru í fimleikum í dag. Þá var grunnurinn ávallt hafður í fyrirrúmi og þáttakendum gert ljóst að flóknar og erfiðar æfingar byggjast alltaf á sterkum og vönduðum grunni, sem gerir áframhaldandi þjálfun bæði öruggari og einfaldari.
Verkefni og próf
Í lok námskeiðsins var lokapróf þar sem þátttakendur héldu 10 mínútna kynningu um eina æfingu sem þeir fengu úthlutað af handahófi. Hróbjartur hélt kynningu um æfinguna Risa Diamidov á tvíslá á meðan Ólafur kynnti þrefaldan rússa á einu haldi á boghesti, en hver þjálfari var metinn út frá eftirfarandi þáttum:
- Verkfræðilegum og líffærafræðilegum (anatomískum) skilningi á æfingunni
- Kennslu og undirbúningi æfingarinnar
- Líkamlegum undirbúningi (physical preparation), þar sem sýndar voru upphitunar-, hreyfanleika- og styrktaræfingar tengdar hreyfimynstri æfingarinnar
- Framvindu og stigvaxandi æfingum (progressions and drills), ásamt öruggri móttöku (spotting)
- Yfirferð á algengum mistökum og leiðréttingum við framkvæmd æfingarinnar
Alþjóðlegir sérfræðingar
Námskeiðið var leitt af alþjóðlegum sérfræðingum, þeim Pedro Almeida frá Portúgal og Damien Millot frá Frakklandi, sem fóru gaumgæfilega yfir öll áhöld fimleikanna og veittu þátttakendum ítarlega endurgjöf.
Hróbjartur og Ólafur stóðu sig með prýði í lokaprófi námskeiðsins. Ólafur endaði með hæstu einkunn allra þátttakenda og var Hróbjartur næsthæstur sem er frábær árangur og mikil viðurkenning fyrir íslenska fimleikaþjálfun.

