Select Page

Íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleikum lauk í dag keppni í undankeppni Evrópumótsins í Zagreb í Króatíu. Liðið hlaut samtals 140,563 stig og hafnaði í 22. sæti af 32 liðum.

Ísland var ein af smærri þjóðunum sem tefldu fram liði í keppninni, þar sem margar af sterkustu fimleikaþjóðum Evrópu voru meðal þátttakenda.

Íslenska liðið hóf keppni á jafnvægisslá og reyndist byrjunin krefjandi. Thelma Aðalsteinsdóttir féll tvisvar í sinni æfingu og Lilja Katrín Gunnarsdóttir einu sinni. Þær héldu þó báðar áfram og luku æfingum sínum vel. Rakel Sara Pétursdóttir og Kristjana Ósk Ólafsdóttir áttu jafnframt góðar æfingar á slánni.

Frá slánni var haldið á gólf þar sem íslensku keppendurnir náðu sér vel á strik og allar fjórar skiluðu flottum æfingum. Stökkið gekk sömuleiðis vel hjá liðinu. Auður Anna Þorbjarnardóttir keppti eingöngu á stökki og var sú eina úr íslenska hópnum sem framkvæmdi tvö stökk.

Tvísláin var síðasta áhald íslenska liðsins. Rakel Sara hóf keppni en æfingin gekk ekki að óskum. Lilja, Thelma og Kristjana fylgdu hins vegar á eftir með sterkum æfingum.

Thelma átti sérstaklega eftirtektarverða æfingu á tvíslánni. Þrátt fyrir að keppa með brotinn fingur greip hún öll fjögur flugin í æfingu sinni og lauk henni með frábærri lendingu úr tvöföldu beinu heljarstökki.

Thelma sagði eftir keppni að hún hefði reynt að hrista af sér erfiða byrjun á slánni, halda áfram með jákvæðu hugarfari og minna sig á að keppnin væri langt frá því að vera búin.

Þetta er ekki búið fyrr en það er búið.

Hún var ánægð með hvernig liðið hélt saman í gegnum keppnina.

Sem lið vorum við flottar saman, þó að það hafi verið smá hnökrar hér og þar. Þetta er ekki alveg það sem við ætluðum okkur en svona er lífið.

Undirbúningur Thelmu fyrir Evrópumótið hefur verið einstaklega krefjandi en hún hefur glímt við ýmis meiðsli að undanförnu, þar á meðal brotinn fingur.

Þetta er búið að vera miklu meira en vanalega. Ég þurfti einhvern veginn bara að ýta þessu frá mér og halda áfram.

Ánægjan eftir tvísláaræfinguna var því mikil. Hluti æfingarinnar er nýr og langaði Thelmu sérstaklega að sýna það sem hún vissi að hún gæti eftir að mistök komu upp á Norðurlandamótinu fyrr í sumar.

Ég er súperánægð með æfinguna og þetta er byrjunin á einhverju skemmtilegu. Seinni hlutinn af æfingunni er nýr og mig langaði virkilega að ná honum. Það tókst og ég er ótrúlega ánægð.

Lilja Katrín tók í sama streng þegar hún ræddi hvernig liðið svaraði krefjandi byrjun.

Það er aldrei auðvelt að byrja á slá og það komu nokkur föll. En svo komum við bara sterkar til baka og kláruðum mótið frekar vel.

Lilja Katrín var efst íslensku keppendanna í fjölþraut og hafnaði í 58. sæti af 92 keppendum með 46,665 stig. Thelma fékk hæstu einkunn íslensku keppendanna á tvíslá, Kristjana Ósk á jafnvægisslá og Rakel Sara á gólfi.

Einn skemmtilegasti hluti dagsins hjá íslenska hópnum var að deila holli með breska landsliðinu. Bresku fimleikakonurnar eru í fremstu röð í íþróttinni og viðurkenndu íslensku stelpurnar að þær hefðu verið með smá stjörnur í augunum.

Þær eru bara svo ótrúlega flottar. Það var gaman að vera með þeim í holli og eiginlega bara forréttindi, sagði Thelma.

Lilja var sömuleiðis ánægð með upplifunina á mótinu.

Stemningin er búin að vera mjög fín. Þetta er stór höll, flottir æfingarsalir og það var gaman að vera með Bretunum á áhaldi og læra af öðrum.

Að keppni lokinni fengu íslensku stelpurnar svo tækifæri til að taka myndir með bresku keppendunum.

Þorgeir Ívarsson landsliðsþjálfari sagði að frammistaðan í dag hefði ekki endurspeglað það sem liðið hefur verið að sýna á æfingum að undanförnu. Hann hefur þó áfram mikla trú á hópnum og því sem stelpurnar geta sýnt þegar allt smellur saman.

Íslenska hópinn í undankeppninni skipuðu Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Rakel Sara Pétursdóttir, Thelma Aðalsteinsdóttir og Auður Anna Þorbjarnardóttir. Þjálfarar þeirra á mótinu eru Abigail Hood og Þorgeir Ívarsson.

Íslenska kvennaliðið lýkur því keppni hér í Zagreb, þótt dagurinn hafi ekki gengið eftir óskum sýndu íslensku stelpurnar mikla seiglu, sterkt hugarfar og héldu áfram að berjast allt til enda.

Á morgun, föstudaginn 14. ágúst, er komið að unglingalandsliðinu sem hefur keppni kl. 15:20. Við minnum á að hægt verður að fylgjast með streymi á GymTV og úrslitum í SmartScoring.

Áfram Ísland!