Í dag var síðasti keppnisdagurinn hér á EM í Finnlandi. Úrslit í fullorðinsflokki byrjaði með blönduðu liði. Stemmningin í höllinni var mikil og orkan í liðinu var enn meiri. Okkar fólk byrjaði á dýnu sem gekk vel í heildina en nokkur mistök voru gerð. Liðið mætti svo á trampólín, kláruðu öll 18 stökk glæsilega, og einkunnin sýndi augljóslega hvað frammistaðan var frábær. Mómentin í dansinum voru örugg og liðið uppfyllti sínar væntingar á þessu Evrópumóti. Liðið endaði í 4. sæti með 52.750 stig.
“Mótið gekk bara mjög vel. Það voru nokkrar uppákomur hjá okkur á fíber, en tækluðum það eins vel og við gátum. Það voru öll lent stökk nema eitt. Það kom upp meiðsli hjá okkur á fiber, þar sem manneskja þurfti að hoppa inn í staðinn (fyrir Heiðu) í næsta umferð. En við gátum ekki beðið um betra. Við gerðum okkar allra besta. Við lentum allt á trampólíni og dansinn var bara það flottasta sem við höfum gert.“ Dagný Lind Hreggviðsdóttir, blandað lið
“Mótið gekk ótrúlega vel í dag, við gerðum allt okkar. Við bættum okkur á milli daga á öllum áhöldum og það er bara það allt sem við ætluðum að gera. Það var ótrúlega gaman hjá okkur í dag, við erum búin að njóta þess að koma fram og skína eins og lið.
Á síðasta EM lærði ég af ýmsu sem við gerðum þar. Þannig núna vorum við bara ótrúlega undirbúin með plan B. Báða dagana, undanúrslit og úrslitadag,“ Yrsa Ívarsdóttir, þjálfari – blandað lið

Mikil spenna var í loftinu fyrir kvennakeppnina. Liðið byrjaði á trampólíni þar sem fyrstu tvær umferðir voru virkilega spenntar og háar, en því miður kom meiðsli upp eftir vonda lendingu í 3. umferð, sem leiddi til breytingar á liðinu fyrir dansinn. Óháð því voru stelpurnar tilbúnar að tækla verkefnið og sýndu glæsilegan dans. Mótið endaði á dýnu þar sem liðið bætti erfiðleikann til að halda sér í baráttunni um að komast upp á pall en þær enduðu í 4. sæti rétt eftir Bretland með 51,650 stig.
“Dagurinn gekk bara heilt yfir ótrúlega vel. Það komu upp smá hnökrar á trampólíni. Ein hætti við en lenti á fótunum sem betur fer og meiddist ekki, en önnur lenti svolítið djúpt og meiddi sig, þannig að við þurftum aðeins að skipta um gír og breyta nokkrum hlutum fyrir dansinn. Ég þurfti að skipta yfir á staðinn sem Sylvía (sem meiddi sig) var á. Svo þurfti Lilja varamaðurinn okkar að koma inn. Hún keppti ekki á undanúrslitunum, og ótrúlega flott að hún gat hoppað svona fínt inn og klárað þetta svona vel. Fórum síðan yfir á fiber, þurftum að breyta nokkrum hlutum. Lentum allt á fótunum, orkan var ótrúleg, ógeðslega gaman og við kláruðum þetta sem lið, þrátt fyrir að sumir hlutir komu upp. Við erum ótrúlega stoltar að liðsheildinni og hvernig við kláruðum þetta.“ Guðrún Jóndóttir, kvennalið
“Við byrjuðum mjög vel. Fyrstu tvær umferðirnar á trampólíni voru frábærar, svo lendum við í smá veseni í 3 umferð þar sem verður eitt fall og Sylvía meiðir sig. Stuttur tíma á milli áhalda, þannig strax farið í að setja inn varamanninn, en mér fannst þær koma ótrúlega flottar inn í dansinn. Svo vissum við að staðan væri orðin erfið og þurftum að negla þennan fiber, en þær voru geggjaðar á fibernum. Upplifunin þeirra var góð, en í liðinu eru 7 stelpur sem hafa aldrei keppt áður í A-landsliði og þær fengu allar að keppa. Við settum inn varamann í dag sem var ekki búin að keppa í undanúrslitum. Hún dansaði og skilaði inn einni umferð. Ekki það sem við ætluðum stigalega séð en við erum ekki endilega að sækjast eftir öllum stigunum. Heldur hefðum við viljað sleppa við uppákomuna á hesti. En þetta gerist og mér fannst liðið koma mjög flott til baka úr því og berjast alla leið. Þær eru frábært lið og við erum með ótrúlega flottan hóp af fólki fyrir það sem koma skal, eftir tvö ár.“ Kristinn Þór Guðlaugsson, þjálfari – kvennalið

Við óskum keppendum og þjálfurum innilega til hamingju með Evrópumótið í hópfimleikum.