Heimsbikarmóti í áhaldafimleikum sem fram fór í Koper í Slóveníu lauk í dag með seinni undanúrslitadegi. Keppt var á slá og gólfi hjá konum og stökki, tvíslá og svifrá hjá körlum.
Ísland átti sinn fulltrúa í úrslitum á tvíslá karla, en Dagur Kári Ólafsson vann sér inn sæti í undankeppninni á föstudag. Dagur var fjórði keppandi upp á tvíslánna í dag og stóð sig mjög vel og hafnaði í 6.sæti. Frábær árangur á meðal þeirra bestu á flottu heimsbikarmóti.



Árangurinn á mótinu í heild sinni telst glæsilegur þar sem fjórir einstaklingar komust í úrslit á einstökum áhöldum. Auður Anna á stökki, Jónas Ingi og Ágúst Ingi á gólfi og Dagur Kári á tvíslánni.
Við óskum keppendum og þjálfurum innilega til hamingu með árangurinn og vitum að þetta er bara byrjunin hjá okkar fólki á stóra sviðinu.
Hér má sjá úrslit mótsins.
Hér eru myndir frá mótinu.
Áfram Ísland!