Í dag fóru fram undanúrslit í kvennakeppni á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í Rotterdam í Hollandi. Þær Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir voru fulltrúar Íslands og mættu báðar vel stemmdar til keppni. mikil yfirvegun var yfir okkar konum sem áttu góðan dag báðar tvær.
Thelma heillaði með glæsilegri gólfæfingu
Thelma keppti í sjöunda keppnishluta og hóf keppni á gólfinu. Thelma hefur heldur betur skapað sér nafn á alþjóðavettvangi og vakti einstök gólfæfing hennar mikla athygli í dag. Hún fékk ófá hrós fyrir glæsilega frammistöðu sem skilaði henni 12.433 stigum.
Thelma datt í uppstökki á slánni, sem reyndist henni dýrkeypt. Að öðru leyti framkvæmdi hún æfinguna af miklu öryggi og hlaut 11.600 stig fyrir. Heimsmeistaramótið hér í Rotterdam var það fimmta í safnið hjá Thelmu, geri aðrir betur.
Lilja Katrín með frábært stökk
Þá var komið að Lilju Katrínu sem keppti í fjölþraut. Hún hóf keppni af miklu öryggi á slánni þar sem hún hlaut 11.866 stig. Gólfæfingin gekk ekki alveg sem skyldi að þessu sinni og skilaði henni 10.100 stigum.
Lilja lét það þó ekki á sig fá og kom sterk til baka á stökkinu þar sem hún framkvæmdi frábært stökk sem skilaði henni 13.066 stigum. Hún fylgdi því eftir með sterkri tvísláaræfingu sem hún hlaut 11.800 stig fyrir.
Samanlagt hlaut Lilja Katrín 46.832 stig í fjölþraut og situr í 78. sæti þegar 111 keppendur hafa lokið keppni. Virkilega góð frammistaða hjá Lilju Katrínu sem fagnaði einmitt 18 ára afmæli sínu í byrjun október og er þegar farin að safna dýrmætri reynslu á stærsta sviði fimleikanna.
Fimleikasamband Íslands óskar Lilju Katrínu, Thelmu og þjálfurum þeirra innilega til hamingju með góða frammistöðu á heimsmeistaramótinu í dag!
Hér er linkur á úrslitin.
Hér verða birtar myndir.





