Frábæru bikarmóti hjá meistaraflokkum í hópfimleikum var rétt í þessu að ljúka í Fjölni Egilshöll, spennandi keppni þar sem baráttan var hörð allan tímann.
Gerplukonur komu sáu og sigrðuði í kvennakeppninni og endurheimtu bikarmeistaratitilinn frá því árið 2023 en kvennalið Stjörnunnar þurfti að sætta sig við silfrið að þessu sinni, en þær sigruðu árin 2024 og 2025. Kvennalið Selfoss hafnaði í 3. sæti. Kvennalið Gerplu sýndu yfirburði í dag og enduðu þær efstar á öllum áhöldum.
Karlalið Stjörnunnar mætti vel stemmt til keppni í dag og sýndu vægast sagt stórkostlegar æfingar, sigruðu þeir örugglega. Geislaði af þeim gleðin og náðu þeir áhorfendum algjörlega á sitt band.
Fimleikasamband Íslands óskar öllum keppendum, þjálfurum og félögum til hamingju með árangurinn og hlökkum við til næstu móta! Að lokum viljum við þakka Fjölni fyrir frábært mótahald, dómurum og öðrum sjálfboðaliðum fyrir aðstoðina og RÚV fyrir gott samstarf.
👉Úrslit mótsins má finna hér.
📸Myndir verða birtar hér.

