Hildur Maja Guðmundsdóttir sótti sér silfur verðlaun á heimsbikarmóti í Tashkent, Uzbekistan í dag – Fyrst allra íslenskra kvenna til þess að vinna til verðlauna á heimsbikarmóti (World Challenge Cup) í áhaldafimleikum og skrifar sig þar með sig í sögubækurnar.
Hildur mætti einbeitt til keppni og með það markmið að næla sér í verðlaun á gólfinu, en átti hún góða möguleiki eftir frábærar æfingar í undankeppninni. Hildur bætti sig frá undanúrslitum með frábærri gólfæfingu og skilaði það henni 12.250stig og silfur verðlaunin.
Í gær keppti Hildur til úrslita á tvíslá, þar sem hún keppti meðal annars við Ólympíumeistarann á tvíslánni. Hildur framkvæmdi öruggar æfingar, hækkaði sig um 0.150 stig á milli daga og hafnaði í 8. sætinu.
Frábær árangur hjá Hildi Maju á sterku heimsbikarmóti sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.
Fimleikasamband Íslands óskar Hildi Maju, þjálfurum og Gerplu innilega til hamingju með þennan tímamótaárangur.
Hér má finna myndir frá deginum.




