Select Page

Þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson mættu heldur betur vel stemmdir til keppni á fyrsta undanúrslitadegi hér í Cottbus, Þýskalandi. Kræktu þér báðir í gríðarlega mikilvæg stig á fyrsta heimsbikarmótinu í sterkustu mótaröð heims, sem þeir safna nú saman í von um að tryggja sér pláss á Heimsmeistaramótinu í Rotterdam í haust. Heimsbikarmótið hér í Cottbus er vinsælt mót og um 40 þjóðir mættu til keppni í dag, þar með taldar stórstjörnur úr fimleikaheiminum.

Ágúst Ingi gerði sér lítið fyrir og framkvæmdi frábæra hringjaseríu, sem skilaði honum 12.633 stigum og 9. sætinu – fyrsti varamaður inn í úrslitin. Hann framkvæmdi einnig örugga gólfæfingu sem skilaði honum 13.266 stigum og 14. sætinu – hann er þá kominn með mikilvæg stig á báðum áhöldunum, en efstu 16 sætin fá stig. Tæknilegir örðugleikar settu svip á keppnina í dag og varð um 40 mínútna bið eftir að keppendur í fyrsta hluta luku keppni. Ágúst, sem keppti í öðrum hluta, lét það þó ekki á sig fá.

Dagur Kári keppti á bogahesti í dag og þurfti hann að sýna mikla þolinmæði þar sem hann steig ekki á keppnisgólfið fyrr en í 6. hluta. Þegar að honum kom var hins vegar ekkert gefið eftir í öryggi og framkvæmd, og skilaði æfingin honum 13.733 stigum og 13. sæti. Þar með eru mikilvæg stig komin í hús hjá Degi Kára.

Keppnisdagur 2

kl. 15:35-19:00

  • Dagur Kári keppir á svifrá í 1. hluta og tvíslá í hluta 6
  • Ágúst Ingi keppir einnig á tvíslá í hluta 6

Hér er hægt að fylgjast með úrslitunum.

Hér má finna myndir frá mótinu.

Birtum við myndbönd af strákunum á samfélagsmiðlum sambandsins.

Fimleikasamband Íslands óskar þeim Ágústi og Degi innilega til hamingju með árangurinn í dag og góðs gengis á morgun á seinni undanúrslitadegi. Áfram Ísland!