Unglingalandslið Íslands í áhaldafimleikum lauk í dag keppni í undankeppni Evrópumótsins í Zagreb í Króatíu eftir mjög góðan og skemmtilegan keppnisdag.
Fyrir íslensku stelpurnar var þetta mikil reynsla en þetta var fyrsta stórmót þeirra allra og í fyrsta skipti sem þær keppa á Podium, sem var bæði ný og skemmtileg upplifun fyrir hópinn.
Íslenska liðið hlaut samtals 128,231 stig og er sem stendur í 17. sæti af 23 liðum. Fjögur lið eiga þó enn eftir að ljúka keppni.
Eydís Eva Hermannsdóttir varð fyrir ökklameiðslum á NM í júlí og gat af þeim sökum ekki keppt þar, en ákvað engu að síður að taka þátt á EM og keppti á tveimur áhöldum, tvíslá og jafnvægisslá. Hinar þrjár íslensku stelpurnar kepptu á öllum fjórum áhöldunum.
Efst íslensku stúlknanna í fjölþraut var Arney Ívarsdóttir með 43,299 stig og er hún sem stendur í 49. sæti af 79 keppendum. Fast á hæla hennar eru Elfa María Reynisdóttir með 42,733 stig og Magdalena Andradóttir með 42,199 stig. Enn eiga nokkrir keppendur eftir að ljúka keppni.
„Við erum mjög sáttar með mótið. Æfingarnar í ferðinni gengu vel, liðsheildin var mjög góð og þær stóðu sig virkilega vel. Þetta var fyrsta stórmót hjá öllum í liðinu og þær náðu allar að læra af ferðinni og njóta á sama tíma,“ sagði Agnes Suto landsliðsþjálfari.
Að fá að keppa í stórri höll, á podium og innan um sterkustu unglinga Evrópu er eitthvað sem stelpurnar geta lagt inn í reynslubankann og tekið með sér inn í næstu verkefni.
Unglingalandslið Íslands á mótinu skipuðu þær Arney Ívarsdóttir, Elfa María Reynisdóttir, Eydís Eva Hermannsdóttir og Magdalena Andradóttir.
Þjálfarar liðsins eru Agnes Suto og Margrét Lea Kristinsdóttir. Þær þekkja vel til landsliðsstarfsins en fóru sjálfar í fjölmargar landsliðsferðir saman sem keppendur. Það er því sérstaklega skemmtilegt að sjá þær nú saman á Evrópumóti sem þjálfarateymi unglingalandsliðsins.
Við erum afar stolt af stelpunum eftir þeirra fyrsta stórmót. Þær fara heim frá Zagreb með góða frammistöðu, sterka liðsheild og dýrmæta reynslu í bankanum.