Karla- og kvennalandslið Íslands í hópfimleikum áttu virkilega öflugan dag á Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum. Bæði lið enduðu undankeppnina í öðru sæti og fara því beint inn í úrslitin sem fara fram á laugardaginn.
Stelpurnar byrjuðu daginn á virkilega flottum gólfæfingum og uppskáru 20.7 stig fyrir. Þær leiddu eftir tvær umferðir en enduðu daginn með 54.150 stig, 0.950 stigum á eftir Svíþjóð sem leiddi öll liðin í kvennaflokki eftir undankeppnina.
Stelpurnar eiga helling inni fyrir úrslitin sem fara fram á laugardaginn og stefnir allt í hreina lendingarkeppni milli Íslands og Svíþjóðar um titilinn í ár.
Það er ljóst að karlalandsliðið sem keppir á EM er það sterkasta sem Ísland hefur átt í áraraðir. Strákarnir voru fullir sjálfstrausts allt mótið og er stemmingin í liðinu engu lík.
Drengirnir fögnuðu ákaft þegar síðasta einkunn dagsins varð ljós enda nældu þeir sér í 19 stig á dýnunni. Þeir, líkt og stelpurnar, enduðu í öðru sæti eftir undankeppnina á eftir Svíunum. Strákarnir voru virkilega ánægðir með árangur dagsins og ætla sér stóra hluti í úrslitunum.
Á morgun keppa unglingalandsliðin um Evrópumeistaratitilinn.
Hér verður hægt að horfa á mótið.
16:15 – Úrslit stúlknaliða og verðlaunaafending
18:30 – Úrslit blandaðraliða unglinga og verðlaunaafhending
Myndir frá mótinu má finna hér.
ÁFRAM ÍSLAND!