Þær Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir eru staddar í Varna, Búlgaríu, þar sem þær keppa á heimsbikarmóti í áhaldafimleikum. Keppnin hófst í gær, Lilja Katrín keppti þá á stökki og tvíslá, en Thelma á tvíslá. Í dag fór svo fram annar undanúrslitadagurinn, þar sem báðar kepptu á slá og gólfi.
Lilja Katrín, sem er að keppa á sínu fyrsta heimsbikarmóti, mætti einbeitt til leiks og framkvæmdi tvö frábær stökk sem tryggðu henni öruggt sæti í úrslitum. Hún sýndi einnig glæsilega tvísláaræfingu og var hársbreidd frá því að komast í úrslitin þar – hún er fyrsti varamaður inn. Í dag framkvæmdi hún afar vel heppnaða sláaræfingu sem skilaði henni 12. sæti. Ekki nóg með það, þá sýndi hún einnig örugga og flotta gólfæfingu sem tryggði henni sæti í úrslitum á morgun. Frábær árangur hjá ungri og efnilegri fimleikakonu!
Fyrst inn í úrslit!
Thelma, sem er ein af reyndustu keppendum okkar, stóð sig einnig frábærlega í dag. Thelma framkvæmdi magnaða gólfæfingu sem skilaði henni inn í úrslitin á sannfærandi hátt – fyrst inn með 13.050 stig. Það eru ekki einu úrslitin hjá henni Thelmu, heldur framkvæmdi hún einnig frábæra sláaræfingu sem skilaði henni 12.350 stig og sæti í úrslitunum á sunnudaginn. Tvísláin gekk ekki alveg eins og hún óskaði en framkvæmdi hún engu að síður flotta tvísláaræfingu með háu erfiðleikagildi. Gaman er að sjá hvað okkar flotta fimleikafólk hefur stimplað sig inn í keppni meðal þeirra bestu í heimi.
„Ég er virkilega stoltur af þeirra frammistöðu og spenntur fyrir úrslitunum“ – Þorgeir Ívarsson, landsliðsþjálfari kvenna.
Við fylgjumst spennt með úrslitakeppninni sem fer fram á morgun og hinn. Því miður er ekki hægt að fylgjast með mótinu í beinni, en við gerum okkar besta til að sýna frá því í Instagramstory. Við hvetjum ykkur eindregið til að fylgja okkur þar svo þið missið ekki af því þegar að þær Thelma og Lilja mæta til keppni í úrslitum.
Úrslitin er hægt að nálgast í Elevien appinu.
Hér má svo sjá myndir frá æfingum og keppni.
Áfram ísland!




