Select Page

Frábær úrslitadagur í Aalborg í dag, þau Ármann Andrason, Ísak Þór Ívarsson, Kristófer Fannar Jónsson, Patrekur Páll Pétursson, Kári Pálmason, Sólon Sverrisson, Sigurrós Ásta Þórisdóttir, Kolbrún Eva Hólmarsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir kepptu til úrslita.

Fjögur gull!

Kári Pálmason átti frábæran dag í úrslitum á gólfi, bogahesti, stökki, tvíslá og svifrá. Hann sótti sér tvö gullverðlaun til viðbótar við fjölþrautargullið í gær, eftir öruggan sigur á tvíslá og svifrá.

Sigurrós Ásta kom fyrst inn í úrslit á gólfi eftir gærdaginn og framkvæmdi hún aftur stórglæsilegar æfingar í dag, hún sigraði örugglega með 12.266 stig – sem var hæsta einkunn dagsins á gólfi og sú eina sem fór yfir 12.000 stig.

Rakel Sara var einnig í miklu stuði og tryggði sér gull á stökki með 12.617 stig. Þetta eru hennar önnur alþjóðlegu verðlaun á stökki á aðeins tveimur vikum – hún vann einnig silfur á Smáþjóðaleikunum í síðustu viku.

Sólon sýndi einnig flott tilþrif á tvíslánni og stökkinu. Hann hafnaði í öðru sæti á stökki með 12.733 stig, eftir einstaklega glæsilega frammistöðu.

Kolbrún Eva framkvæmdi flotta gólfæfingu, en eftir smávægileg mistök varð hún að sætta sig við 5. sætið.

Þeir Ísak, Ármann, Patrekur og Kristófer stóðu sig allir með prýði. Ísak nældi sér í bronsverðlaun á stökki – frábær reynsla fyrir þessa flottu stráka sem eru að stíga sín fyrstu skref á alþjóðlegum vettvangi.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn um helgina. Áfram Ísland!

Hér eru myndir.

Hér er úrslitasíða.