Select Page

Ferðalagið á EM í áhaldafimleikum er hafið. Karla- og kvennalandslið Íslands eru komin til Tyrklands eftir langt ferðalag. Ferðalagið gekk smurt fyrir sig og nýttum við tímann á milli fluga vel. Stoppað var í Danmörku þar sem að keppendur höfðu tíma til þess að taka stutta æfingu.

Bæði liðin tóku stutta æfingu í æfingarsalnum í gær og eru landsliðin almennt mjög ánægð með áhöldin og salina. Við fengum að kíkja í keppnissalinn sem er hinn glæsilegasti, við bíðum spennt eftir að fá að prufa áhöldin.

Karlarnir mæta svo á Podiumæfingu í dag, en upphitun hjá þeim byrjaði klukkan 11:00 á íslenskum tíma.

Konurnar eiga Podiumæfingu á morgun og keppa karlarnir þriðjudaginn, næstkomandi.

Keppnistími

  • Karlakeppni
    • Þriðjudagurinn 11. apríl – Sub 3
    • Keppni hefst kl. 14:30 á íslenskum tíma
  • Kvennakeppni
    • Miðvikudagurinn 12. apríl – Sub 1
    • Keppni hefst kl. 07:00 á íslenskum tíma

Bein streymi frá Qualifications

European Gymnastics munu streyma mótinu. Við hvetjum því alla heima til þess að fylgjast með glæsilegasta fimleikafólki landslins á Evrópumótinu í áhaldafimleikum.

ÁFRAM ÍSLAND!