Select Page

Evrópumótið í áhaldafimleikum kvenna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 12.–16. ágúst. Ísland á bæði kvennalandslið og unglingalandslið kvenna á mótinu og eru allir keppendur nú mættir til Zagreb og undirbúningur fyrir keppni kominn vel af stað.

Kvennalandsliðið kom til Zagreb á sunnudagskvöld eftir langt ferðalag. Mánudagurinn fór í æfingu og í dag, þriðjudag, var komið að podiumæfingu þar sem liðið fékk að æfa við sömu aðstæður og bíða þess í keppninni.

Podiumæfingin gekk heilt yfir mjög vel hjá íslenska liðinu. Smávægilegir tæknilegir örðugleikar komu þó upp hjá mótshöldurum þegar liðið var á gólfi í annarri umferð æfingarinnar og tónlist íslensku keppendanna fór ekki af stað. Að podiumæfingunni lokinni var tæknin hins vegar komin í lag og fengu stelpurnar þá tækifæri til að fara í gegnum dansana sína með tónlist.

Undirbúningurinn hefur að öðru leyti gengið vel og stemningin í hópnum er góð. Því miður puttabrotnaði Thelma Aðalsteinsdóttir skömmu fyrir ferðina til Zagreb en hún framkvæmdi engu að síður frábæra tvísláaræfingu á podiumæfingunni í dag, sem verður að teljast ansi aðdáunarvert miðað við aðstæður.

Unglingalandsliðið kom til Zagreb á mánudag og tók sína fyrstu æfingu í dag. Á morgun, miðvikudag, er komið að podiumæfingu hjá þeim, þar sem þær fá að kynnast keppnisaðstæðunum áður en keppni þeirra hefst á föstudag. Engin þeirra hefur áður keppt á podium og verður æfingin á morgun því eflaust einstök og eftirminnileg upplifun fyrir þær allar.

Dagskrá íslensku liðanna

Miðvikudagurinn 12. ágúst

  • Podiumæfing unglingalandsliðs kl. 15:20–17:30

Fimmtudagurinn 13. ágúst

  • Undankeppni kvennalandsliðs kl. 16:20–18:35

Föstudagurinn 14. ágúst

  • Undankeppni unglingalandsliðs kl. 15:20–17:35

Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Evrópumótsins og á mótasíðu European Gymnastics.

Hægt verður að fylgjast með útsendingum frá mótinu á GymTV og úrslitum í SmartScoring.

Hér verða birtar myndir frá íslenska hópnum og mótinu í Zagreb.

Landslið Íslands

Kvennalið Íslands

  • Auður Anna Þorbjarnardóttir – Stjarnan
  • Lilja Katrín Gunnarsdóttir – Gerpla
  • Kristjana Ósk Ólafsdóttir – Gerpla
  • Rakel Sara Pétursdóttir – Gerpla
  • Thelma Aðalsteinsdóttir – Gerpla

Þjálfarar eru Þorgeir Ívarsson og Abigail Hood.

Unglingalandslið Íslands

  • Arney Ívarsdóttir – Stjarnan
  • Elfa María Reynisdóttir – Gerpla
  • Eydís Eva Hermannsdóttir – Stjarnan
  • Magdalena Andradóttir – Ármann

Þjálfarar eru Agnes Suto og Margrét Lea Kristinsdóttir.

Með liðunum í för eru einnig Kristín Gísladóttir, sjúkraþjálfari, og Eva Hrund Gunnarsdóttir, fararstjóri. Alþjóðlegir dómarar á mótinu eru Sæunn S. Viggósdóttir og Ragna Þyri Ragnarsdóttir.

Framundan eru spennandi keppnisdagar í Zagreb og hlökkum við til að fylgjast með íslensku stelpunum þegar keppni hefst á fimmtudag.

Áfram Ísland!