Select Page

Evrópumótið í áhaldafimleikum er handan við hornið og mættu þær Thelma Aðalsteinsdóttir og Hildur Maja Guðmundsdóttir til Leipzig í Þýskalandi í fyrradag. Því miður varð Lilja Katrín Gunnarsdóttir að draga sig úr keppni vegna meiðsla. Við óskum henni góðs bata.

Karlalandslið Íslands – Atli Snær Valgeirsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson og Valgarð Reinhardsson – Mætti til Leipzig í gær.

Stelpurnar mættu ferskar á æfingu í gær og eru þær tilbúnar fyrir Podiumæfinguna sem fer fram í keppnissal í dag. Karlarnir mæta á æfingu í dag og taka svo þátt á Podiumæfingu á morgun sunnudaginn, 25. maí.

Beint streymi

SmartScoring’s Gymtv.online bíður upp á beint streimi frá öllum áhöldum í undankeppninni, Aðgangur kostar 20€.

  • Íslensku konurnar keppa í hluta 3, kl. 13:30 og byrjar á slá
  • Íslenska karlaliðið keppir í hluta 1, kl. 08:00 og byrjar á hringjum

EM Í BEINNI Á RÚV

  • 28. maí, kl. 15:00 – Mixed Teams Finals NÝTT
  • 29. maí, kl. 12:00 – Fjölþraut kvenna
  • 29. maí, kl.16:30 – Fjölþraut karla
  • 30. maí, kl. 14:00 – Úrslit á áhöldum
  • 31. maí, kl. 11:00 – Úrslit á áhöldum

Myndir frá íslensku keppendunum verða birtar hér.

Ef þú átt leið hjá Leipzig, er hægt að kaupa miða hér.

Við hvetjum allt fimleikaáhugafólk til að fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum:
📸 Icelandic_Gymnastics á Instagram
📘 Fimleikasamband Íslands á Facebook

Fimleikasamband Íslands óskar öllum keppendum góðs gengis – við hlökkum til að fylgjast með ykkur á stóra sviðinu!