Þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson mættu til Cottbus, Þýskalands í gær þar sem þeir munu taka þátt á Heimsbikarmóti. Í gær skelltu þeir sér á létta æfingu í æfingasalnum og í dag prufukeyrðu þeir keppnisáhöldin á podiumæfingu. Með þeim í för eru Viktor Kristmannsson þjálfari, Björn Magnús Tómasson dómari og Þórey Kristinsdóttir farastjóri/media.
Strákarnir stóðu sig vel í dag og nýttu þeir tímann í að fínpússa fyrir fyrsta undanúrslitadag sem fer fram á morgun, sá seinni fer fram á föstudaginn. Ágúst Ingi keppir á gólfi, hringjum og tvíslá og Dagur Kári keppir á bogahesti, tvíslá og svifrá. Útslitin verða sýnd í beinni og munum við gera okkar besta að sýna frá undanúrslitum á samfélagsmiðlum sambandsins.
Dagskrá
Nákvæmari tímasetningar vitum við eftir að dregið hefur verið í hluta í kvöld.
Fimmtudagurinn 19. febrúar
Kl 15:35-19:00 á íslenskum tíma
- Ágúst Ingi keppir á gólfi og hringjum
- Dagur Kári keppir á bogahesti
Föstudagurinn 20. febrúar
Kl 15:35-19:00 á íslenskum tíma
- Ágúst Ingi keppir á tvíslá
- Dagur Kári keppir á tvíslá og svifrá
Laugardagurinn 21. febrúar
Kl 13:00 – 16:20 á íslenskum tíma
- Úrslit á gólfi, bogahesti og hringjum
Sunnudagurinn 22. febrúar
Kl 13:00 – 16:20 á íslenskum tíma
- Úrslit á stökki, tvíslá og svifrá
Deilum við upplýsingum um nákvæmari tímasetningar og úrslitalink (sé það í boði) á samfélagsmiðlum sambandsins.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Degi Kára og Ágústi Inga góðs gengis í fyrsta landsliðsverkefni ársins.