Select Page

Frábærum fyrsta úrslitadegi er lokið í Szombathely í Ungverjalandi þar sem þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson kepptu á einu áhaldi hvor. Báðir mættu vel einbeittir til leiks og Dagur Kári tryggði sér bronsverðlaun á bogahesti.

Dagur Kári keppti á sínu sterkasta áhaldi, bogahesti, og bætti við erfiðleika í afstökkinu frá undanúrslitunum. Hann framkvæmdi frábæra æfingu sem skilaði honum 14.233 stigum, 0,3 stigum meira en í undanúrslitunum, og dugði það örugglega til bronsverðlauna.

Það var smá spenna í Degi í upphafi, enda var hann fyrstur til keppni á áhaldinu, sem getur verið krefjandi staða í úrslitum. Reynsluboltinn lét það þó ekki á sig fá og skilaði af sér afar sterkri keppnisæfingu.

Ágúst Ingi átti einnig mjög góðan dag á hringjunum. Hann framkvæmdi nánast hnökralausa æfingu sem skilaði honum 12.666 stigum og 6. sæti í úrslitunum. Hann hélt þar með sama sæti og hann hafði tryggt sér í undanúrslitunum.

Frábær byrjun á úrslitahelginni hjá íslenska liðinu og ekki síst stórkostlegur árangur hjá Degi Kára sem fer heim með bronsverðlaun frá Szombathely.

„Planið var að gera aðeins erfiðara afstökk, gera E afstökkið og það hafðist, þannig ég er mjög sáttur með það.“ – sagði Dagur Kári með bronsið um hálsinn.

Veislan heldur áfram á morgun þegar að Ágúst Ingi keppir til úrslita á svifránni.

Sunnudagurinn 20. september, úrslitadagur 2

  • Keppt til úrslita á stökki, tvíslá og svifrá. Keppni hefst kl. 13:00.

*allt íslenskur tími

Einkunnir má finna í Elevien appinu og myndbönd af keppnisæfingum á samfélagsmiðlum sambandsins.

Hér er linkur á myndir frá mótinu.

Fimleikasamband Íslands óskar strákunum innilega til hamingju með árangurinn í dag og hvetjum við allt fimleikaáhugafólk til þess að fylgjast með á samfélagsmiðlunum sambandsins þegar Ágúst kepptir á morgun.

ÁFRAM ÍSLAND!