Select Page

Landslið blandaðs liðs unglinga í hópfimleikum

Your Title Goes Here

Day(s)

:

Hour(s)

:

Minute(s)

:

Second(s)

Landslið fyrir Evrópumót 2026

Ferlið fram að EM 2026

Í úrvalshópum eru iðkendur fæddir 2009-2012. Þar eru iðkendur sem uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur sem landsliðsþjálfarar gefa út. Kröfur eru sendar á félögin og eru aðgengilegar á heimasíðu Fimleikasambandsins. Félagsþjálfarar tilnefna þá iðkendur sem uppfylla lágmarkskröfur og landsliðsþjálfarar fara yfir tilnefningarnar og horfa á mót vetrarins. Úrvalshópur er breytilegur yfir árið og því eiga allir möguleika á að komast í hóp. 

Fimleikasambandið stefnir að því að senda þrjú lið í U-18 á Evrópumótið 2026 (EM), stúlknalið, drengjalið og blandað lið.  Mótið verður haldið í Espoo, Finnlandi, október 2026. 

Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Eva Hrund Gunnarsdóttir en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans með faglegri aðstoð frá Eddu Dögg Ingibersdóttur. 

Landsliðshópur – blandað lið unglinga – 2026

Dagskrá

    Hér má sjá  lágmörk inn í úrvalshóp unglinga fyrir EM 2026: Lágmörk

    Athugið að félag/félagsþjálfarar skrá iðkendur (sem uppfylla lágmörk) í úrvalshóp í gegnum þjónustugátt FSÍ.

    Skráningu lokar 4.mars

     

    Markmið

    Hér má sjá markið sem að landsliðsþjálfara hafa sett upp fyrir EM 2026: Markmið fyrir 2026

      Mómentamarkmið fyrir EM 2026 og undirbúningsæfingar má finna hér

       Landsliðsþjálfarar – blandað lið unglinga

      Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir
      Gólfæfingar

      Ylfa Sól Guðmundsdóttir
      Stökkáhöld

      Helgi Laxdal Aðalgeirsson
      Stökkáhöld

      Fyrirkomulag bandaðra liða á Evrópumótum

      Lokahópur samanstendur af tíu keppendum og tveimur varamönnum. Í hópnum þarf að vera jafnt hlutfall kvenna og karla. Meiðist keppandi, þarf keppandi af sama kyni að fylla í skarð þess keppanda. Keppt er í undanúrslitum þar sem liðin freista þess að komast á lokamót. Einungis sex lið ná því og keppa um Evrópumeistaratitilinn.

      Úrslit Íslands á Evrópumótum í blönduðu liði unglinga

      Fyrsta Evrópumótið fór fram árið 1996. Keppni í unglingaflokki hófst fyrst á Evrópumótum árið 2010.

      2012 – Århus, Danmörk – 4. sæti

      2014 – Reykjavík, Ísland – 3. sæti

      2016 – Maribor, Slóvenía – 3. sæti

      2018 – Odivelas, Portúgal – 4. sæti

      2021 – Porto, Portúgal – 3. sæti

      2022 – Lúxemborg – 5. sæti

      2024 – Baku – 1. sæti

       

      Áfram Ísland

      #fyririsland
      #fimleikarfyriralla
      #islenskirfimleikar

      Um næsta Evrópumót

      Staðsetning

      Espoo, Finland

      Dagsetning

      14.-17. október 2026

      Aldur

      Unglingaflokkur 14-17 ára
      Fullorðinsflokkur 16 ára og eldri