Select Page

Laugardaginn næsta, 18. apríl fer fram Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum í Sola, Noregi, Ísland sendi fimm sterk lið til keppni en öll unnu þau sér inn rétt til þátttöku á haustmóti FSÍ 2025.

Liðin eru eftirfarandi; Gerpla MIX, Gerpla KVK, Selfoss MIX, Selfoss KVK og Stjarnan KK. Alls eru 24 lið frá fimm löndum að taka þátt. Íslensku liðin hefja ferðalagið á morgun og fá þau svo eitt tækifæri á föstudag til þess að æfa í keppnissalnum, keppnin tekur svo við á laugardagsmorgun. Búast má við frábærri keppni og verður það spennandi að fylgjast með á laugardaginn.

Laugardagurinn 18. apríl

  • 08:15 – opnunarhátíð
  • 08:30 – keppni í blönduðum flokki
  • 11:30 – keppni í kvennaflokki
  • 14:30 – keppni í karlaflokki
  • 16:00 – verðlaunaafhending

allt íslenskir tímar

Miðasala í fullum gangi

Hér er hægt að kaupa sér miða á mótið.

Beint streymi!

Fyrir norðurlandaþjóðirnar (nema Noreg) verður beint streymi að hjá Gympabubblan. Það þarf að búa til aðgang og skrá sig inn til þess að fá aðgang að streyminu.

Bein úrslit

Hér verður hægt að fylgjast með úrslitunum í beinni.

Hér verða birtar myndir af íslensku keppendunum.

Fimleikasamband Ísland óskar keppendum góðs gengis á Norðurlandamótinu um helgina!

ÁFRAM ÍSLAND!

Liðsmyndir frá félögunum