Vilt þú upplifa EM-ævintýrið með okkar allra besta hópfimleikafólk í Lúxemborg? Við eigum titil að verja! VITA Sport og Fimleikasamband Íslands bjóða upp á ferð á Evrópumótið í hópfimleikum í Lúxemborg 13. – 18. september 2022.
Vinsamlegast athugið að ferðin verður til sölu fram að 2. júlí nk. og takmarkað magn er í boði.
Ferðapakkinn
- Flug með Icelandair
- Ísland – Frankfurt
- Brussel – Ísland
- Rútuferðir fram og til baka, flugvöllur – Lúxemborg
- 4* hótel í miðborg Lúxemborg, Novotel Luxembourg Centre
- Miði á mótið
Með því að versla ferðina hjá VITA styrkið þið um leið Fimleikasamband Íslands.
Ferðin þarf að ná lágmarksfjölda til að verða farin.