Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í hópfimleikum hafa valið landslið fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2021.
Mótið fer fram dagana 1.- 4. desember 2021 í Guimaraes, Portúgal. Ísland sendir tvö lið í fullorðinsflokki; kvennalið og karlalið og tvö í unglingaflokki; stúlknalið og blandað lið á mótið.
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum innilega til hamingju með landsliðssætin og óskar þeim góðs gengis í undirbúningi fyrir mótið.
Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla