Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í hópfimleikum hafa valið loka landsliðshópa fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2021. Hóparnir samanstanda af 60 iðkendum úr sjö félögum. Mótið fer fram dagana 1.- 4. desember 2021 í Guimaraes, Portúgal. Ísland sendir tvö lið í fullorðinsflokki; kvennalið og karlalið og tvö í unglingaflokki; stúlknalið og blandað lið á mótið.
Við óskum iðkendum og félögum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.
Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla