Nú hefur Fimleikasambandið mannað landsliðsþjálfarastöður fyrir Evrópumótið 2021 í hópfimleikum. Yfirmaður verkefnisins er framkvæmdastjóri FSÍ, Sólveig Jónsdóttir en daglegur rekstur og umsjón þess er á höndum afreksstjórans, Írisar Mistar Magnúsdóttur. Yfirþjálfarar verkefnisins, með faglega stjórn og uppbyggingu, eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, en þau eru meðal reyndustu þjálfara Íslands með feril sem skartar tveimur Evrópumeistaratitlum.
Evrópumótið verður haldið 1. – 4. desember 2021 í Porto í Portúgal. Fimleikasambandið stefnir á að senda tvö fullorðinslið á mótið, kvennalið og karlalið og tvö unglingalið, stúlknalið og blandað lið unglinga.
Þjálfara hvers liðs í stafrófsröð má sjá hér fyrir neðan.
Landsliðsþjálfarar Íslands fyrir Evrópumótið 2021
Yfirþjálfarar landsliða
Landsliðsþjálfarar kvennaliðs
Ásta Þyrí Emilsdóttir – Gólfæfingar Karen Sif Viktorsdóttir – Stökk Þorgeir Ívarsson – Stökk
Landsliðsþjálfarar karlaliðs
Erla Rut Mathiesen – Gólfæfingar Mikkel Schertz – Stökk Tomas Bekkavik – Stökk
Landsliðsþjálfarar stúlknaliðs
Björk Guðmundsdóttir – Gólfæfingar Magnús Óli Sigurðsson – Stökk Una Brá Jónsdóttir – Stökk
Landsliðsþjálfarar blandaðs liðs unglinga
Benedikt Rúnar Valgeirsson – Stökk Katrín Pétursdóttir – Gólfæfingar Ragnar Magnús Þorsteinsson – Stökk
Við óskum öllum þjálfurum til hamingju og óskum þeim góðs gengis í komandi vinnu fyrir landslið Íslands.
Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla