Þá hafa þeir Ágúst Ingi og Dagur Kári lokið við undankeppni á HM í áhaldafimleikum hér í Rotterdam, Hollandi.
Krefjandi byrjun á svifrá
Byrjuðu þeir á svifrá í dag, taugarnar létu aðeins sjá sig þar og gerðu þeir báðir kostnaðarsöm mistök á svifrá, báðir tveir settu kassann út og kláruðu mótið með stæl. Ágúst Ingi varð efstur íslenskra keppenda í dag og kláraði hann mótið með 75.898 stig og Dagur Kári rétt á eftir honum með 75.532 stig.
Dagur Kári vissi að ef hann ætlaði að endurtaka leikinn og koma sér inn í fjölþrautarúrslitin eins og honum tókst í Jakarta í fyrra þá þurfti hann að taka mikla áhættu og framkvæma mjög erfitt stökk, sem því miður gekk ekki í dag.
Efstir Norðurlandabúa
Ísland færist nær og nær þeim bestu í heimi, það er ánægjulegt að sjá að nú þegar mótið er hálfnað þá er það ljóst að Dagur Kári og Ágúst Ingi munu enda fyrir ofan marga mjög efnilega fimleikamenn og eru þeir efstir norðurlandabúa sem stendur þegar 68 fjölþrautakeppendur hafa lokið keppni.
„Við erum á pari við þá bestu í heimi, en auðvitað viljum við alltaf meira“ – segir Ágúst Ingi sem er eins og stendur í 20. sætinu á HM þegar mótið er hálfnað.
Fimleikagleðin heldur áfram en á morgun tekur við æfingadagur hjá konunum og á mánudag mæta þær svo til keppni á HM.
Hér er hægt að fylgjast með úrslitum.
Hér er linkur á beint streymi.
Hér verða birtar myndir.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Degi Kára og Ágústi Inga innilega til hamingju með árangurinn í dag og þeim Lilju Katrínu og Thelmu góðs gengis á mánudaginn.



