Rétt í þessu voru íslensku strákarnir að ljúka við podiumæfingu dagsins hér í Rotterdam, Hollandi á Heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. Podiumæfingun er hugsuð sem prufuæfing fyrir keppnina þar sem keppendur fá tækifæri til að prufukeyra keppnisáhöldin í keppnishöllinni.
Æfingin hjá okkar mönnum var ótrúlega góð, mikið af jákvæðum punktum og örfá mistök – en nú gefst tími til að fínpússa á morgun og eru þeir „til í slaginn“ eins og Ágúst Ingi Davíðsson segir eftir podiumæfingu dagsins.
Þær Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir eru mættar til Rotterdam, vorum við smá smeik við óveðrið á Íslandi í morgun en þær eru komnar á leiðarenda og hefja æfingar á morgun.
Keppnisdagskrá (íslenskir tímar)
Laugardagurinn 17. október – undankeppni karla
- Sub 1 – kl. 08:00
- Sub 2 – kl. 10:10
- Sub 3 – kl. 14:00 – hér keppa Dagur og Ágúst í fjölþraut
- Sub 4 – kl. 16:10
Sunnudagurinn 18. október – undankeppni karla framhald og undankeppni kvenna hefst
- Sub 5 – kl. 08:00
- Sub 6 – kl. 10:10
- Sub 1 í kvennakeppninni – kl. 14:00
- Sub 2 – kl. 15:50
- Sub 3 – kl. 17:40
Mánudagurinn 19. október – undankeppni kvenna framhald
- Sub 4 – kl. 07:30
- Sub 5 – kl. 09:00
- Sub 6 – kl. 10:40
- Sub 7 – kl. 14:00 – Hér keppir Thelma á slá og gólfi
- Sub 8 – kl. 15:35
- Sub 9 – kl. 17:35 – Hér keppir Lilja í fjölþraut
- Sub 10 – kl. 19:10
Þriðjudagurinn 20. október – Liða úrslit karla – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Miðvikudagurinn 21. október – Liða úrslit kvenna – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Fimmtudagurinn 22. október – fjölþrautarúrslit karla – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Föstudagurinn 23. október – fjölþrautarúrslit kvenna – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Laugardagurinn 24. október – úrslit á einstökum áhöldum, dagur 1 – Í BEINNI Á RÚV
- kl. 12:00
Sunnudagurinn 25. október – úrslit á einstökum áhöldum, dagur 2 – Í BEINNI Á RÚV
- kl. 12:00
Hér er hægt að streyma undanúrslitum og fylgjast með einkunnum.
Myndir frá okkur verða birtar hér.
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og hlökkum við mikið til að fylgjast með ykkur á stóra sviðinu!
ÁFRAM ÍSLAND!





