HM vikan er hafin, þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson eru mættir til Rotterdam, Hollands þar sem Heimsmeistaramót í áhaldafimleikum fer fram dagana 17.-25. október. Á morgun mætir svo restin af hópnum, þar Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir.
Dagurinn í dag er fremur rólegur hjá strákunum en æfa þeir í æfingasalnum seinnipartinn og svo á morgun taka þeir þátt á podiumæfingu – eina skiptið sem þeir fá að sjá og snerta keppnisáhöldin fyrir keppni.
Róbert Kristmannsson og Þorgeir Ívarsson eru þjálfarar í verkefninu, Hlín Bjarnadóttir og Björn Magnús Tómasson, alþjóðlegir dómarar dæma, Konný Lára Birgisdóttir er sjúkraþjálfari og Þórey Kristinsdóttir farastýrir/media.
Keppnisdagskrá (íslenskir tímar)
Laugardagurinn 17. október – undankeppni karla
- Sub 1 – kl. 08:00
- Sub 2 – kl. 10:10
- Sub 3 – kl. 14:00 – hér keppa Dagur og Ágúst í fjölþraut
- Sub 4 – kl. 16:10
Sunnudagurinn 18. október – undankeppni karla framhald og undankeppni kvenna hefst
- Sub 5 – kl. 08:00
- Sub 6 – kl. 10:10
- Sub 1 í kvennakeppninni – kl. 14:00
- Sub 2 – kl. 15:50
- Sub 3 – kl. 17:40
Mánudagurinn 19. október – undankeppni kvenna framhald
- Sub 4 – kl. 07:30
- Sub 5 – kl. 09:00
- Sub 6 – kl. 10:40
- Sub 7 – kl. 14:00 – Hér keppir Thelma á slá og gólfi
- Sub 8 – kl. 15:35
- Sub 9 – kl. 17:35 – Hér keppir Lilja í fjölþraut
- Sub 10 – kl. 19:10
Þriðjudagurinn 20. október – Liða úrslit karla – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Miðvikudagurinn 21. október – Liða úrslit kvenna – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Fimmtudagurinn 22. október – fjölþrautarúrslit karla – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Föstudagurinn 23. október – fjölþrautarúrslit kvenna – Í BEINNI Á RÚV 2
- kl. 17:30
Laugardagurinn 24. október – úrslit á einstökum áhöldum, dagur 1 – Í BEINNI Á RÚV
- kl. 12:00
Sunnudagurinn 25. október – úrslit á einstökum áhöldum, dagur 2 – Í BEINNI Á RÚV
- kl. 12:00
Hér er hægt að streyma undanúrslitum og fylgjast með einkunnum.
Myndir frá okkur verða birtar hér.
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og hlökkum við mikið til að fylgjast með ykkur á stóra sviðinu!
ÁFRAM ÍSLAND!