Þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson kepptu í undankeppni World Challenge Cup í Szombathely í Ungverjalandi í dag. Strákarnir mættu heldur betur vel stemmdir til keppni og tryggðu sér samtals þrjú úrslitasæti. Ágúst Ingi er komst í úrslit á hringjum og svifrá en Dagur Kári tryggði sér sæti í úrslitum á sínu sterkasta áhaldi, bogahestinum.
Þeir hófu báðir keppni á gólfi þar sem Ágúst Ingi fékk 13,000 stig og Dagur Kári 13,166 stig. Frábærar einkunnir hjá þeim báðum og er Dagur Kári fyrsti varamaður inn í gólfúrslitin á morgun.
Dagur Kári átti síðan frábæra æfingu á bogahesti og fékk fyrir hana 13,933 stig, sem skilaði honum þriðja sætinu inn í úrslitin.
Ágúst Ingi gerði sömuleiðis frábæra hringjaæfingu og fékk 13,066 stig, sem tryggði honum sæti í úrslitum. Hann bætti svo öðru úrslitasæti við á svifránni þar sem hann fékk 12,900 stig.
Þeir Ágúst og Dagur hafa báðir sýnt að þeir eru sannarlega komnir í baráttuna við þá bestu á tvíslánni. Því miður var dagurinn þó ekki þeirra á því áhaldi. Tvísláin var eitt af síðustu áhöldum dagsins eftir langa og stranga keppni, en um fjórar klukkustundir liðu frá fyrsta áhaldi þeirra til þess síðasta.
„Þetta var misskiptur dagur, ég er bæði sáttur og ósáttur, en ég get ekki kvartað að vera kominn inn í tvenn úrslit á heimsbikarmóti“ – sagði Ágúst Ingi eftir daginn.
Það var góð orka í salnum í dag og strákarnir geta farið sáttir með frammistöðuna á koddann eftir flottan keppnisdag.
Fyrsti undanúrslitadagur hefst á morgun, þar sem Dagur keppir á bogahesti og Ágúst á hringjunum, á sunnudag tekur svo við seinni undanúrslitadagur og þá keppir Ágúst á svifránni.
„Planið er að klára E afstökk í úrslitunum á bogahestinum, ég myndi græða 0.2 á því, það væri fínt“ – hafði Dagur Kári að segja um úrslitin á morgun
Laugardagurinn 19. september, úrslitadagur 1
- Keppt til úrslita á gólfi, bogahesti og hringjum. Keppni hefst kl. 13:00,
Sunnudagurinn 20. september, úrslitadagur 2
- Keppt til úrslita á stökki, tvíslá og svifrá. Keppni hefst kl. 13:00.
*allt íslenskur tími
Einkunnir má finna í Elevien appinu og myndbönd af keppnisæfingum á samfélagsmiðlum sambandsins.
Hér er linkur á myndir frá mótinu.
Fimleikasamband Íslands óskar stráknum til hamingju með árangurinn í dag og góðs gengis í úrslitunum um helgina.


