Þeir Dagur Kári Ólafsson og Ágúst Ingi Davíðsson eru mættir til Szombathely, Ungverjalands þar sem þeir munu taka þátt á World Challenge Cup um helgina. Með þeim í för eru Ólafur Garðar Gunnarsson þjálfari, Jón Sigurður Gunnarsson alþjóðlegur dómari og Agnes Suto farastjóri.
Í dag kláruðu strákarnir podiumæfingu, prufukeyrðu þeir áhöldin og á morgun föstudag, taka við undanúrslitin.

Podiumæfingin gekk mjög vel og eru strákarnir tilbúnir að stíga á stóra sviðið á morgun. Keppir Ágúst Ingi á gólfi, hringjum, tvíslá og svifrá og Dagur Kári á gólfi, bogahesti, tvíslá og svifrá.
Dagskrá
Föstudagurinn 18. september, undanúrslit
- Keppni hefst kl. 13:00 og hefja okkar menn keppni ca. kl. 13:40 á íslenskum tíma.
Laugardagurinn 19. september, úrslitadagur 1
- Keppt til úrslita á gólfi, bogahesti og hringjum. Keppni hefst kl. 13:00,
Sunnudagurinn 20. september, úrslitadagur 2
- Keppt til úrslita á stökki, tvíslá og svifrá. Keppni hefst kl. 13:00.
*allt íslenskur tími
Einkunum verður deilt á Elevien appinu og opnar fyrir myndbönd af keppnisæfingu þar eftir keppni. Við munum deila myndböndum af strákunum okkar á samfélagsmiðlum sambandsins.
Hér er linkur á myndir frá mótinu.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Degi Kára og Ágústi Ingi góðs gengis í Szombathely, Ungverjalandi.
Áfram Ísland!

