Róbert Kristmannsson, landsliðsþjálfari hefur tilnefnt tvo einstaklinga til þátttöku á Heimsbikarmóti í Szombathely, Ungverjalandi dagana 18.-20. september.
Karlalandslið Íslands skipa;
- Ágúst Ingi Davíðsson, Gerpla
- Dagur Kári Ólafsson, Gerpla
Ólafur Garðar Gunnarsson er þjálfari í verkefninu og Daði Snær Pálsson dómari.
Fimleikasambandi Íslands óskar þeim Ágústi Inga og Degi Kára góðs gengis í undirbúningi.
