Select Page

Með góðu gengi á Evrópumótinu í Zagreb unnu þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson sér inn sæti á Heimsmeistaramótinu sem fer fram um miðjan október í Rotterdam.

Þetta er í fyrsta skipti sem Ágúst Ingi, ríkjandi íslandsmeistari, vinnur sér inn keppnisrétt á HM í gegnum Evrópumót. Dagur Kári er tæknilega einnig að vinna sér inn HM sæti í fyrsta skipti en hann komst inn á Heimsmeistaramótið í Antwerpen sem varamaður þessa EM leið.

Martin Bjarni Guðmundsson náði einnig lágmarki inn á HM en aðeins er pláss fyrir tvo keppendur frá hverju landi í einstaklingskeppninni.

Aðeins 23 einstaklingar frá Evrópumóti geta unnið sig inn á HM þessa leið og því ljóst að Ágúst Ingi og Dagur Kári eru að stimpla inn í hóp þeirra bestu.

Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis í undirbúningi fyrir HM.

Við hlökkum til að fylgjast með þeim á stóra sviðinu í Rotterdam ásamt Lilju Katrínu Gunnarsdóttur.

Áfram Ísland!