Select Page

Karlalandslið Íslands í áhaldafimleikum lauk í dag keppni í undanúrslitum á Evrópumótinu, sem fram fer í Zagreb. Liðið skipa þeir Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Martin Bjarni Guðmundsson og Valgarð Reinhardsson. Jónas Ingi Þórisson keppti jafnframt í einstaklingskeppni á gólfi og átti þar góða frammistöðu. Hann fékk hæstu einkunn íslensku keppendanna á því áhaldi, 13.133 stig.

Íslensku strákarnir áttu frekar þunga byrjun á svifránni, sem var þeirra fyrsta áhald . Þrátt fyrir það létu þeir það ekki slá sig út af laginu og komu inn af krafti á gólfið. Allir kláruðu gólfæfingar sínar með glæsibrag og náðu þar með góðum viðsnúningi eftir erfiða byrjun.

Á bogahestinum héldt velgengnin áfram. Dagur Kári, sem er okkar helsti sérfræðingur á bogahesti, var nokkuð sáttur með sína æfingu en hefði viljað framkvæma seinni hluta seríunnar betur. Markmiðið er skýrt hjá honum – að komast í úrslit á bogahesti, sem bíður betri tíma að hans sögn.

Á hringjunum gekk keppnin nokkuð hnökralaust fyrir sig og sömu sögu má segja af stökkinu, fyrir utan eitt fall hjá Degi Kára sem var að reyna við nýtt stökk. Tvísláin var einnig flott hjá liðinu.

Jónas Ingi Þórisson keppti jafnframt í einstaklingskeppni á gólfi og átti þar góða frammistöðu. Hann fékk hæstu einkunn íslensku keppendanna á því áhaldi, 13.133 stig.

Þrátt fyrir góða kafla og sterk einstaklingsafrek náði liðið ekki að tryggja sér það sæti á heimsmeistaramótinu sem að var stefnt. Það voru að sjálfsögðu vonbrigði fyrir hópinn, en jafnframt ljóst að liðið á töluvert inni.

Strákarnir ætla sér því að nýta reynsluna úr Zagreb, halda áfram að byggja ofan á góða kafla dagsins og mæta enn sterkari til leiks á næsta Evrópumóti í lok apríl á næsta ári.

Markmiðið er enn það sama: að tryggja sér sæti á HM.

Þjálfarar liðsins á mótinu eru Viktor Kristmansson og Ólafur Garðar Gunnarsson.

Hér má sjá úrslit mótsins. Hæstur íslensku keppendanna var íslandsmeistarinn, Ágúst Ingi Davíðsson með 75.296 stig. Næstu honum var Dagur Kári Ólafsson með 75.231

Á morgun, fimmtudag, fer svo fram keppni í unglingaflokki. Þar eigum við tvo keppendur í einstaklingskeppni, þá Kára Hjaltason og Þorstein Orra Ólafsson. Þeir keppa kl.12:00 á íslenskum tíma og hægt er að fylgjast með í streymi á GymTV og úrslitum á SmartScoring.