Select Page

Evrópumótið í áhaldafimleikum karla fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 19.–23. ágúst. Ísland sendir karlalandslið til leiks auk eins „specialista“ á gólfi og í unglingaflokki keppa tveir drengir í einstaklingskeppni.

Ferðadagur var hjá karlaliðinu á laugardag og því tekin létt æfing í æfingahöllinni á sunnudeginum. Í dag (mánudag) fór fram svo kölluð podium æfing, en þá fá keppendur að æfa í keppnishöllinni og prófa áhöldin þar.

Podiumæfingin gekk heilt yfir mjög vel hjá íslenska liðinu, strákarnir og þjálfarar mjög sáttir með daginn og tilbúnir fyrir keppni á miðvikudaginn.

Unglingarniar komu til Zagreb í gær og tóku sína fyrstu æfingu í dag. Á morgun, þriðjudag, er komið að podiumæfingu hjá þeim, þar sem þeir fá að kynnast keppnisaðstæðunum áður en keppni þeirra hefst á fimmtudag.

Dagskrá íslensku strákanna

Miðvikudagurinn 19. ágúst

  • Undankeppni karlandsliðs kl. 12:00–15:30

Fimmtudagurinn 20. ágúst

  • Undankeppni unglingalandsliðs kl. 12:00–14:50

Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu Evrópumótsins og á mótasíðu European Gymnastics.

Hægt verður að fylgjast með útsendingum frá mótinu á GymTV og úrslitum í SmartScoring.

Hér verða birtar myndir frá íslenska hópnum og mótinu í Zagreb.

Landslið Íslands

Karlalið Íslands

  • Ágúst Ingi Davíðsson
  • Dagur Kári Ólafsson
  • Martin Bjarni Guðmundsson
  • Valgarð Reinhardsson

Specialisti á gólfi Jónas Ingi Þórisson

Þjálfarar eru Viktor Kristmannson og Ólafur Garðar Gunnarsson.

Unglingalandslið Íslands

  • Kári Hjaltason
  • Þorsteinn Orri Ólafsson

Þjálfari er Hróbjartur Pálmar Hilmarsson og Ólafur Garðar Gunnarsson

Alþjóðlegir dómarar á mótinu eru Björn Magnús Tómasson og Sigurður Hrafn Pétursson

Framundan eru spennandi keppnisdagar í Zagreb og hlökkum við til að fylgjast með íslensku strákunum þegar keppni hefst á miðvikudag.

Áfram Ísland!