Select Page

Frábæru Norðurlandamóti í áhaldafimleikum hér í Álandseyjum lokið. Í dag var keppt til úrslita á einstökum áhöldum og átti Ísland 15 fulltrúa í úrslitunum.

Dagur Kári Norðurlandameistari á bogahesti og tvíslá og Auður Anna á stökki.

Dagur Kári Ólafsson sannaði í dag styrk sinn á bogahestinum og tvíslánni þegar að hann tryggði sér örugglega gull á báðum áhöldum með 13.966 og 13.233 stig. Auður Anna Þorbjarnardóttir sýndi norðurlandabúum stökkkraftinn sem í henni býr og sigraði hún örugglega með 12.733 stig fyrir stökkin sín. Thelma Aðalsteinsdóttir sótti sér silfur á bæði tvíslá og slá, aðeins hársbreidd frá gullverðlaununum í bæði skiptin, fékk hún 12.200 á slá og 12.366 á gólfi. Ágúst Ingi Davíðsson sem keppti til úrslita á fjórum áhöldum, hann sótti sér brons á gólfinu með 13.000 stig og hringjunum með 12.600 stig að auki varð hann í því fjórða á svifránni. Martin Bjarni Guðmundsson sem er að koma til baka eftir erfið meiðsli, átti líka góðan dag á svifránni, þar sem hann framkvæmdi nánast hnökralausa æfingu og sótti sér brons fyrir með 12.866 stig. Kári Pálmason keppti til úrslita á fjórum áhöldum og fékk hann silfur á gólfi með 12.466 stig eftir frábærar æfingar. Elfa María keppti til úrslita á gólfi og eftir stórkostlega æfingu fékk hún brons, jöfn Mille Rosseland frá Noregi með 11.366 stig.

Í úrslitum kepptu einnig þau Þorsteinn Orri Ólafsson, Arnór Snær Hauksson, Kári Hjaltason, Arney Ívarsdóttir og Magdalena Andradóttir í unglingaflokki, öll sýndu þau frábæra fimleika og mörg hver að keppa á sínu allra fyrsta alþjóðlegu móti. Þau fara svo sannarlega heim reynslunni ríkari.

Atli Snær Valgeirsson keppti til úrslita á stökkinu og hafnaði hann í 4. sæti, Lilja Katrín Gunnarsdóttir á slánni og hafnaði hún í 5. sæti og Rakel Sara Pétursdóttir á gólfinu og stökki, hafnað hún í 6. sæti á stökki og því 4. á gólfinu.

Fimleikafólkið fer heim með fullt af mikilvægari reynslu sem mun svo sannarlega hjálpa til við loka undirbúninginn fyrir EM í ágúst.

Hér má finna úrslitin.

Hér má finna myndir frá NM.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með frábært NM.