Select Page

Í dag fór fram fyrsti dagur Norðurlandamóts í áhaldafimleikum á Álandseyjum. Sterk og skemmtileg keppni landsliða Norðurlandanna sem eru flest öll á loka metrunum í undirbúningi fyrir Evrópumót í ágúst.

Dagurinn hófst á keppni í unglingaflokki stúlkna þar sem unglingalandslið Íslands mætti vel stemmt til keppni þrátt fyrir að vera manni færri þar sem að Eydís Eva slasaðist því miður á æfingunni í gær og gat ekki verið með. Stelpurnar áttu góðan dag og höfnuðu þær í 4. sæti aðeins 0.1 frá því þriðja. Bestan árangur íslenskra stúlkna átti hún Arney Ívarsdóttir en hún hafnaði í 10. sæti með 42.950 stig.

Seinnipartinn tóku svo konurnar við, þær sýndu svo sannarlega hvað í þeim býr og fara þær Auður Anna Þorbjarnardóttir, Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Rakel Sara Pétursdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir heim með brons um hálsinn í liðakeppninni. Norðmenn tóku silfur og sterkt lið Svía gullið. Thelma átti frábæran dag í dag og hafnaði hún í 3. sæti í fjölþrautinni með 49.000 stig rétt á eftir þeim Emelie Westlund og Jennifer Williams frá Svíþjóð í fyrsta og öðru sæti.

Fjölmörg úrslit

Það mun ekki vanta upp á Íslenska keppendur í úrslitunum á laugardag, en eftir fyrsta dag keppninnar þá eru 7 keppendur í samtals 11 úrslitum og enn eiga karlarnir eftir að keppa.

Unglingaflokkur stúlkna – úrslitakeppendur

  • Arney Ívarsdóttir á tvíslá og slá
  • Magdalena Andradóttir á gólfi
  • Elfa María Reynisdóttir á gólfi

Kvennaflokkur – úrslitakeppendur.

  • Thelma Aðalsteinsdóttir á tvíslá, slá og gólfi
  • Rakel Sara Pétursdóttir á stökki og gólfi
  • Lilja Katrín Gunnarsdóttir á slá
  • Auður Anna Þorbjarnardóttir á stökki

Á morgun hefst svo karlakeppnin en unglingalandslið Íslands hefur keppni kl. 08:00 og Karlalandslið Íslands kl. 13:00 – íslenskur tími.

Hér má finna úrslit dagsins.

Hér má finna myndir frá deginum.

Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn í dag og góðs gengis í úrslitunum.