Þeir Aron Freyr Davíðsson, Davíð Þór Bjarnason, Kári Hjaltason og Þorsteinn Orri Ólafsson kepptu á sterka unglingamótinu Junior Team Cup í Þýskalandi síðastliðna helgi, um ræðir frábær mót þar sem mörg lönd senda sýna allra sterkustu unglingsdrengi til keppni. Ísland hefur tekið þátt síðastliðin ár með góðu gengi og árið í ár var eigi síðra, frábær reynsla og mikilvægur undirbúningur fyrir unglingalandsliðið okkar sem er einnig á fullu í undirbúningi fyrir Norðurlandamótið sem fer fram í Álandseyjum í þarnæstu viku og svo Evrópumótið sem fer fram í Króatíu um miðjan ágúst.
Junior Team Cup er sett upp sem bæði liða- og einstaklingskeppni en keppt er í þremur aldursflokkum. Íslensku strákarnir voru nokkuð jafnir en Þorsteinn Orri náði bestu árangri Íslands með 65.400 stig, rétt á eftir honum með 65.200 stig var Kári Hjaltason, Þar á eftir Davíð Þór með 64.850 stig og Aron Freyr með 64.800 stig.
Með þeim í för voru þau Ólafur Garðar Gunnarsson þjálfari, Jón Sigurður Gunnarsson alþjóðlegur dómari og Agnes Suto farastjóri, en hún tók einnig þessar frábæru myndir sem fá að fylgja fréttinni.
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá einkunnir.
Hér má finna myndir frá mótinu.




