Select Page

Landsliðsþjálfarar fullorðinna hafa valið landsliðshópa tvö fyrir Evrópumót í hópfimleikum 2026.

Mótið er haldið hátíðlega dagana 14. – 17. október í Espoo, Finnlandi.

Endanlegt val í landslið er á dagskrá 16. ágúst.

Markmið A landsliða á stórmótum í hópfimleikum eru eftirfarandi (vísað í afreksstefnu sambandsins).

Markmið fyrir A landslið á stórmótum:

Að fá hærri lokaeinkunn á hverju áhaldi í hverju liði milli móta.
Að öll lið sem send eru á mótið komist í úrslit.
Að kvennalið sigri EM.
Að blandað komist á verðlaunapall.

Stefnt er að því að senda tvö A landslið á mótið og hefur val í landsliðshópa tekið mið af þeirri áætlun. Tekin hefur verið ákvörðun að senda lið í kvennaflokki og blönduðum flokki.

Æfingalota er vikuna 7.-13. júní og upplýsingar um skipulag er að finna undir landsliðsflipum viðeigandi hópa hér á heimasíðunni okkar. Æfingum verður einnig bætt við inn í Abler hóp.

Landsliðshópana skipa

Fimleikasamband Íslands óskar iðkendum, þjálfurum og félögum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.  

Áfram Ísland!

Landsliðsþjálfarar áskilja sér rétt til breytinga.


#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla