Þær Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir eru staddar í Tashkent, Úsbekistan, þar sem seinni undanúrslitadegi á heimsbikarmóti var að ljúka. Lilja Katrín keppti á tvíslá, slá og gólfi og komst örugglega inn í úrslit á slá og gólfi, hún var ekki langt frá úrslitum á tvíslánni líka, þar er hún fyrsti varamaður.
Tvísláin vafðist aðeins fyrir Lilju í fyrradag, en fall á óheppilegum stað setti stórt strik í reikninginn. Sláin hjá Lilju var algjörlega frábær og skilaði æfingin henni 12.050 stigum og 6. sætinu inn í úrslitin. Gólfæfingarnar hennar Lilju voru eigi síðri, þær skiluðu henni 11.800 stigum og 7. sætinu inn í úrslitin á sunnudag.
Rakel Sara sem var að keppa á sínu fyrsta heimsbikarmóti, framkvæmdi tvö glæsileg stökk í gær þar sem hún reyndi við nýtt seinna stökk, endaði hún ellefta með 12.250 stig – Reynsluboltinn og margfaldi Ólympíufarinn, Oksana Chusovitina situr í efsta sætinu á stökkinu eftir undanúrslitin. Rakel Sara varð einnig ellefta á slá og tólfta á gólfi.
Úrslitin fara fram um helgina, þar sem keppt er á stökki og tvíslá á morgun og slá og gólfi á sunnudag. Eurovisionsport mun sýna frá mótinu í beinni og hægt er að fylgjast með einkunnum í Elevien Appinu. Hvetjum við allt fimleikaáhugafólk til þess að fylgjast með þegar Lilja keppir í tvöföldum úrslitum á sunnudag!
Dagskrá
- Laugardagurinn 23. maí
- Úrslit á stökki kl. 10:40
- Úrslit á tvíslá kl. 11:40 – Lilja varamaður
- Sunnudagurinn 24. maí
- Úrslit á slá kl. 10:40 – Lilja keppir hér
- Úrslit á gólfi kl. 11:40 – Lilja keppir hér
Hér eru myndir frá keppninni, hæfileikaríka Agnes Suto er með þeim í för og sér hún um miðlana okkar á meðan.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Rakeli Söru og Lilju Katrínu innilega til hamingju með árangurinn og Lilju Katrínu góðs gengis í úrslitum á sunnudag! ÁFRAM ÍSLAND!


