Þá er komið að World Challenge Cup í Tashkent, Úsbekistan, þær Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir eru mættar út og tilbúnar til keppni. Með þeim í för eru þau Stephen Hood, þjálfari, Agnes Suto, farastjóri og Daniella Belanyi alþjóðlegur dómari. Ferðalagið hófst í fyrradag og lauk í gærmorgun, í gær tóku þær létta æfingu og í dag tók við podiumæfing.
Ferðalagið byrjaði á smávæginlegum hnökrum þegar töskurnar þeirra skiluðu sér ekki á leiðarenda, og hafa þær ekki enn skilað sér út – þær Rakel Sara og Lilja Katrín voru vel undirbúnar með æfinga og keppnisfatnað í handfarangri og láta það ekki á sig fá að vanta töskurnar sínar, þó við vonum samt að þær skili sér fyrir keppni á morgun. Podiumæfingin gekk mjög vel og stelpurnar tilbúnar að stíga á stóra sviðið á morgun.
Á morgun hefst fyrsti undanúrslitadagurinn, þar sem keppt er á stökki og tvíslá í kvennakeppninni. Rakel Sara hefur keppni kl. 09:30 á Íslenskum tíma og Lilja Katrín á tvíslá kl. 11:30. Á föstudag tekur svo við seinni undanúrslitadagur þar sem stelpurnar okkar keppa á slá og gólfi.
Dagskrá
Fimmtudagurinn 21. maí – undanúrslitadagur 1
- Rakel Sara keppir á stökki kl. 09:30
- Lilja Katrín keppir á tvíslá kl. 11:30
Föstudagurinn 22. maí – undanúrslitadagur 2
- Rakel Sara og Lilja Katrín keppa á slá milli kl. 09:30 – 11:10
- Rakel Sara og Lilja Katrín keppa á gólfi milli kl. 11:10 – 12:50
Laugardagurinn 23. maí – úrslitadagur 1
- Úrslit á stökki og tvíslá kvenna
- Úrslit á gólfi, bogahesti og hringjum karla
- Úrslit hefjast kl. 10:00
Sunnudagurinn 24. maí – úrslitadagur 2
- Úrslit á slá og gólfi kvenna
- Úrslit á stökki, tvíslá og svifrá karla
- Úrslit hefjast kl. 10:00
*Allt íslenskur tími
Við munum deila link á bein úrslit ef hann verður í boði á samfélagsmiðlum sambandsins.
Hér er linkur á myndir frá mótinu.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Lilju Katrínu og Rakeli Söru góðs gengis í Tashkent, Úsbekistan.
Áfram Ísland!






