Íslandsmótið í hópfimleikum fer fram 14. – 17. maí næstkomandi í fimleikasal ÍA á Akranesi og markar einn af hápunktum vetrarins í íslenskum hópfimleikum.
Ríkjandi Íslandsmeistarar í kvenna- og karlaflokki eru skráðir til keppni
Fremstu hópfimleikalið landsins mæta til keppni í hverjum flokki fyrir sig. Ríkjandi Íslandsmeistarar kvenna og karla í Stjörnunni mæta til leiks en að þessu sinn er Stjarnan ekki með blandað lið sem sigraði í fyrra. Skráð til keppni í kvennaflokki eru einnig Gerpla, ríkjandi Bikarmeistarar síðan í mars, Selfoss og ÍA. Í blönduðum flokki er það lið Aftureldingar sem teflir í fyrsta sinn fram liði í fullorðinsflokki.
Kvennalið Stjörnunnar sem varð í öðru sæti á Norðurlandamóti í nóvember síðast liðnum á harma að hefna frá Bikarmótinu í mars og er það alveg klárt mál að það verður hörð og spennandi keppni í kvennaflokki.
Þéttpökkuð dagskrá alla helgina
Að auki verður keppt í 1., 2., 3. flokki og KKE sem og í stökkfimi sömu helgi, einnig á Akranesi. Skipulagið í heild sinni má finna á heimasíðu sambandsins.
👉 Skipulag keppninnar má finna hér.
Miðasala fer fram í Stubb appinu: https://stubb.is/fimleikafelagia/tickets
Keppni í beinni á RÚV
RÚV mun sýna beint frá keppni í fullorðinsflokki:
- Sunnudaginn 17. maí kl. 16:00 – keppni í fullorðinsflokki
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og áhorfendum góðrar skemmtunar!
📸 Myndir frá mótinu verða birtar hér.
Hér er svo hlekkur á bein úrslit.