Select Page

Landsliðsþjálfarar unglinga hafa valið landsliðshópa fyrir Evrópumót í hópfimleikum 2026.

Mótið er haldið hátíðlega dagana 14. – 17. október í Espoo, Finnlandi.

Stefnt er að því að senda þrjú unglingalandslið á mótið og hefur val í landsliðshópa tekið mið af þeirri áætlun.

Fyrsta æfing liðanna er gólfæfing 3. maí og koma nánari upplýsingar um tímasetningu og staðsetningu fyrir hvert lið þegar nær dregur. Úrtökuæfing fyrir landsliðshópa er haldin 22. maí. Skipulag er að finna undir landsliðsflipum viðeigandi hópa hér á heimasíðunni okkar. Æfingum verður einnig bætt við inn í uppfærðan Abler hóp.

Landsliðsþjálfarar hafa haldið vel utanum niðurstöður og gengi móta á 2025-2026 tímabilinu, bæði myndefni og töluleg gögn. Þeir hafa einnig haft til hliðsjónar útfyllt kröfublöð frá félagsþjálfurum og skráningu félaganna í úrvalshóp við val í hópinn.

Landsliðsþjálfarar áskila sér rétt til breytinga ef þörf þykir.

Landsliðshópana skipa

Við óskum iðkendum og félögum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.  

Áfram Ísland!


#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla