Úrslit á áhöldum fóru fram í dag á Íslandsmóti í áhaldafimleikum þar sem besta fimleikafólk landsins sýndi hvað í þeim býr. Andrúmsloftið var rafmagnað í úrslitum á einstökum áhöldum er oft mikil spenna, þar sem keppendur gefa oft enn meira í og reyna við flóknari æfingar en í fjölþrautinni.
Ágúst Ingi Davíðsson hélt áfram sigurgöngu sinni frá því í gær og sópaði að sér Íslandsmeistaratitlum á mótinu. Eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í fjölþraut bætti hann við sig titlum á gólfi, hringjum, stökki, tvíslá og svifrá og varð því Íslandsmeistari á fimm áhöldum af sex. Hann deilir titlinum á stökki með Sigurði Ara Stefánssyni, en voru þeir jafnir í dag. Þá hafnaði Ágúst einnig í þriðja sæti á bogahesti og vann því til verðlauna á öllum áhöldum.
Gaman er að segja frá því að Ágúst er þriðji ættliðurinn í beinan karllegg til að verða Íslandsmeistari í fjölþraut, en bæði faðir hans Davíð Ingason og afi hans Ingi náðu þeim árangri á sínum tíma.
Sigurður Ari Stefánsson, sem deildi titlinum á stökki með Ágústi, bætti við sig silfri á bogahesti. Jón Sigurður Gunnarsson, margfaldur Íslandsmeistari á hringjum, varð að láta sér silfrið nægja að þessu sinni.
Dagur Kári Ólafsson sýndi styrk sinn á bogahesti þar sem hann varð Íslandsmeistari með afar fallegum og öruggum æfingum. Hann keppti eingöngu á því áhaldi í dag eftir hnjask í gær, en það kom ekki að sök þrátt fyrir að hann hafi sýnt auðveldari útgáfu af æfingum sínum.
Martin Bjarni Guðmundsson, sem varð þriðji í fjölþraut, nældi sér í silfur á gólfi og brons á hringjum. Jónas Ingi Þórisson hafnaði í þriðja sæti á gólfi í afar jafnri og spennandi keppni þar sem einungis munaði 0,05 stigum á honum og Martin.
Atli Snær Valgeirsson átti góðan dag og vann til bronsverðlauna á stökki. Hann hafnaði einnig í öðru sæti á tvíslá og í öðru sæti á svifrá. Lúkas Ari Ragnarsson úr Björk veitti þeim harða keppni á tvíslá og svifrá og endaði í þriðja sæti á báðum áhöldum.
Thelma og Lilja í harðri baráttu
Í kvennaflokki hélt Thelma Aðalsteinsdóttir úr Gerplu áfram sinni sigurgöngu eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í fjölþraut í gær. Thelma keppti á þremur áhöldum og varð Íslandsmeistari á gólfi og slá. Hún átti í afar jafnri og spennandi baráttu við Lilju Katrínu Gunnarsdóttur. Lilja tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á tvíslá með aðeins 0,033 stiga mun og bætti við sig silfri á slá og gólfi. Lilja Katrín kemur einnig úr Gerplu.
Á stökki varð Auður Anna Þorbjarnardóttir úr Stjörnunni Íslandsmeistari eftir tvö glæsileg stökk. Rakel Sara Pétursdóttir úr Gerplu hafnaði í öðru sæti og nældi sér einnig í brons á slá.
Agnes Suto úr Gerplu, keppti til úrslita á tvíslá í dag og tryggði sér bronsverðlaunin.
Sigurrós Ásta Þórisdóttir úr Stjörnunni hafnaði í þriðja sæti á gólfi og einnig í þriðja sæti á stökki.
Sterk frammistaða í unglingaflokki
Í unglingaflokki var Kári Pálmason úr Gerplu áberandi en hann varð Íslandsmeistari á gólfi, bogahesti, tvíslá og svifrá auk þess að vinna silfur á hringjum.
Kári Hjaltason, einnig úr Gerplu, varð Íslandsmeistari á hringjum og bætti við sig silfri á bogahesti og tvíslá.
Þorsteinn Orri Ólafsson úr Ármanni varð Íslandsmeistari á stökki og vann silfur á gólfi, auk þess að næla sér í brons á nokkrum áhöldum.
Í kvennaflokki unglinga varð Elfa María Reynisdóttir úr Gerplu Íslandsmeistari á stökki, slá og gólfi. Arney Ívarsdóttir úr Stjörnunni varð Íslandsmeistari á tvíslá og vann einnig silfur og brons á öðrum áhöldum.
Frábært mótahald og mikil stemmning
Mótið heppnaðist afar vel og var stemmningin frábær allan tímann. FSÍ vill koma á framfæri þökkum til Ármanns fyrir glæsilegt mótahald og RÚV fyrir frábært samstarf í beinni útsendingu.
Einnig þökkum við öllum sjálfboðaliðum, dómurum, keppendum og áhorfendum fyrir sitt framlag – án þeirra hefði mótið ekki heppnast svona vel.
Úrslitin má nánar skoða á Úrslitasíðu Fimleikasambandsins.
Myndir mótsins má skoða á Myndasíðu Fimleikasambandsins.
Áfram íslenskir fimleikar!