Íslandsmótið í áhaldafimleikum fer fram 18. og 19. apríl næstkomandi í fimleikasal Ármanns í Laugardal og markar einn af hápunktum vetrarins í íslenskum áhaldafimleikum.
Ríkjandi Íslandsmeistarar skráðir til keppni
Fremsta fimleikafólk landsins mætir til keppni, þar á meðal ríkjandi Íslandsmeistarar í fjölþraut, þau Atli Snær Valgeirsson og Thelma Aðalsteinsdóttir. Einnig eru skráð til keppni ríkjandi Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum, þau Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Dagur Kári Ólafsson, Lúkas Ari Ragnarsson og Jón Sigurður Gunnarsson. Það er því alveg ljóst að spennandi keppni er fram undan.
Ágúst Ingi Davíðsson sem hafnaði í 4. sæti á heimsbikarmóti í Cottbus í Þýskalandi í febrúar, verður meðal keppanda. Fyrrverandi Íslandsmeistararnir Nanna Guðmundsdóttir og Valgarð Reinhardsson eru sömuleiðis á meðal keppenda, ásamt öðrum frábærum keppendum og má búast við harðri baráttu um titlana.
Ríkjandi Íslands- og Norðurlandameistari í unglingaflokki, Kári Pálmason, mætir einnig til keppni. Ljóst er að nýr Íslandsmeistari verður krýndur í unglingaflokki kvenna, þar sem Rakel Sara Pétursdóttir, sem sigraði örugglega í fyrra, hefur nú náð aldri í fullorðinsflokki og keppir þar um titilinn í ár.
Íslandsmeistarar í fjölþraut krýndir á laugardag
Laugardaginn 18. apríl fer fram keppni í fjölþraut og í lok dags verða Íslandsmeistarar krýndir bæði í fullorðins- og unglingaflokki. Innmarsch hefst kl. 12:40 hjá fullorðnum og kl. 17:20 hjá unglingum.
Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum krýndir á sunnudag
Sunnudaginn 19. apríl fer svo fram keppni á einstökum áhöldum. Fimm efstu keppendurnir frá fyrri degi á hverju áhaldi vinna sér inn rétt til að keppa til úrslita. Innmars hefst kl. 12:50 hjá körlum, bæði í unglinga- og fullorðinsflokki, og kl. 13:10 hjá konum í báðum flokkum.
Þéttpökkuð dagskrá alla helgina
Að auki verður keppt í 1.-3. þrepi sömu helgi, einnig í Ármanni. Skipulagið í heild sinni má finna á heimasíðu sambandsins.
👉 Skipulag keppninnar má finna hér.
Miðasala fer fram í hurð.
Keppni í beinni á RÚV
RÚV mun sýna beint frá keppni í fullorðinsflokki báða dagana:
- Laugardaginn 18. apríl kl. 13:00 – fjölþrautarúrslit
- Sunnudaginn 19. apríl kl. 13:00 – úrslit á einstökum áhöldum
Fimleikasamband Íslands óskar keppendum góðs gengis og áhorfendum góðrar skemmtunar!
📸 Myndir frá mótinu verða birtar hér.
Hér er svo hlekkur á bein útslit.