Heimsbikarmótsgleðin heldur áfram!
Þeir Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson og Valgarð Reinhardsson eru allir mættir til Osijek í Króatíu eftir langt ferðalag í gær þar sem þeir munu keppa á heimsbikarmóti. Þeir eru nú staddir á podiumæfingu þar sem þeir fá tækifæri til að prufukeyra keppnisáhöldin í keppnissalnum og fínpússa æfingarnar fyrir keppnina.
Með þeim í för eru Róbert Kristmannsson landsliðsþjálfari, Daði Snær Pálsson alþjóðlegur dómari og Helga Svana Ólafsdóttir fararstjóri og fjölmiðlafulltrúi.
Á morgun hefst undankeppnin með fyrri undanúrslitadeginum, þar sem keppt verður á gólfi, bogahesti og hringjum. Á föstudag fer síðan fram seinni undanúrslitadagurinn og þá verður keppt á stökki, tvíslá og svifrá.
Við höfum ekki upplýsingar um hvort bein útsending frá undanúrslitunum verði í boði en ef svo er þá munum við að sjálfsögðu deila linkunum á samfélagsmiðlana okkar, að auki munum við gera okkar besta til að sýna einnig frá undankeppninni á samfélagsmiðlum sambandsins: Icelandic_Gymnastics á Instagram og Fimleikasamband Íslands á Facebook.
Dagskrá
Fimmtudagurinn 9. apríl
Kl. 12:00 á íslenskum tíma
- Valgarð keppir á hringjum
- Dagur Kári keppir á gólfi og bogahesti
- Ágúst Ingi keppir á gólfi og hringjum
Föstudagurinn 10. apríl
Kl. 12:00 á íslenskum tíma
- Valgarð keppir á svifrá
- Dagur Kári keppir á tvíslá og svifrá
- Ágúst Ingi keppir á tvíslá
Laugardagurinn 11. apríl
- Úrslit á gólfi kl. 12:25*
- Úrslit á bogahesti kl. 13:49*
- Úrslit á hringjum kl. 15:15*
Sunnudagurinn 12. apríl
- Úrslit á stökki kl. 12:15*
- Úrslit á tvíslá kl. 13:40*
- Úrslit á svifrá kl. 15:05*
*íslenskur tími
World Gymnastics hefur gert samning við Elevien appið, þar sem myndbönd og einkunnir frá keppni verður deilt eftir mótið.
Við munum deila link á bein úrslit ef hann verður í boði á samfélagsmiðlum sambandsins.
Hér er linkur á myndir frá mótinu.
Fimleikasamband Íslands óskar þeim Ágústi Inga, Degi Kára og Valgarði góðs gengis í Osijek, Króatíu.
Áfram Ísland!