Landsliðsþjálfarar fullorðinna hafa valið landsliðshópa fyrir Evrópumót í hópfimleikum 2026.
Mótið er haldið hátíðlega dagana 14. – 17. október í Espoo, Finnlandi.
Markmið A landsliða á stórmótum í hópfimleikum eru eftirfarandi (vísað í afreksstefnu sambandsins).
Markmið fyrir A landslið á stórmótum:
Að senda lið í kvenna-, karla- og blönduðum flokki á Evrópumót (EM).
Að fá hærri lokaeinkunn á hverju áhaldi í hverju liði milli móta.
Að öll lið sem send eru á mótið komist í úrslit.
Að kvennalið sigri EM.
Að blandað komist á verðlaunapall.
Að karlalið endi í topp 4.
Stefnt er að því að senda þrjú A landslið á mótið og hefur val í landsliðshópa tekið mið af þeirri áætlun. Tekin hefur verið ákvörðun að staðfesta fjölda liða, og skiptingu innan liða að loknu Íslandsmóti. Þó endurspeglar núverandi hópur þann fjölda sem þarf til að mynda þrjú lið og lofar því góðu fyrir framhaldið.
Fyrsta æfingalota hefst á morgun og upplýsingar um skipulag er að finna undir landsliðsflipum viðeigandi hópa hér á heimasíðunni okkar. Æfingum verður einnig bætt við inn í Abler hóp.
Landsliðshópana skipa



Við óskum iðkendum og félögum innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.
Áfram Ísland!
#fyririsland
#islenskirfimleikar
#fimleikarfyriralla